Vikan


Vikan - 11.07.2000, Qupperneq 38

Vikan - 11.07.2000, Qupperneq 38
Veiðiferð undir Eikinni Herra George Fitz- gerald setti veiði- hattinn yfir þykkt, grásprengt hárið og sveipaði vönduðum tweedjakka yfir unglegan, stæltan líkamann. Hann fór aldrei út úr húsi nema vel til fara og það breytti engu þótt hann væri að fara einn að veiða hér í sveitinni. Hann hafði alltaf gætt þess vel að vera vel á sig kominn líkamlega, hann elskaði útiveruna og hingað kom hann þegar hann átti frí til að klippa trén í garðinum, slá túnið eða huga að húsinu. George tók veiðitöskuna sína og stöngina og leit yfir bjartan og rúmgóðan ganginn, síðan steig hann út í sól- skinið og lokaði þykkri eikar- hurðinni á eftir sér. Hann naut þess að heyra smellina í stein- lagðri stéttinni og andaði bros- leitur að sér ilminum af rósarunnunum við gangstíginn. Mikið fannst honum alltaf gott að koma hingað á æskustöðvar sínar. Þvíklík andstæða við ys og þys borgarlífsins og þess fjár- málaheims sem hann hrærðist í. Hér var hann búinn að koma sér upp paradís á jörð. Það hafði ekki alltaf verið svona reisulegt á Dockers End. Þegar hann var barn bjuggu for- eldrar hans þar við þröng kjör ásamt börnunum sínum þremur og ekki batnaði ástandið þegar faðir hans féll frá aðeins þrjátíu og níu ára gamall. George var að- eins sextán ára þegar faðir hans lést, en það kom í hans hlut að hjálpa móður sinni við búskap- inn, hirða kýrnar og svínin og sinna öllum þeim störfum sem bændur höfðu með höndum. Honurn mislíkaði það svo sem ekki, hann hafði alltaf reiknað með að verða bóndi á Dockers End eins og faðir hans og afi höfðu verið. En sældarlíf var það ekki. Annie, eldri systir hans, hafði flutt að heiman aðeins 17 ára gömul, en Bertha, sú yngri, var heima og hjálpaði til eins og hún gat. Þeim mæðginunum tókst í sameiningu að sjá til þess að dýrin væru vel hirt og að hús- ið færi ekki í niðurníðslu, en bú- skapurinn náði ekki að fjár- magna frekari framkvæmdir. Samt voru þetta góðir dagar. George hugsaði enn til bernsku sinnar með þakklæti. Hér hafði hann leikið sér innan um hæn- urnar sem gengu lausar í kring- um húsið og hann saknaði aldrei neins. Hann fylgdist vel með öllu sem fram fór í sveitinni og fann sér alltaf eitthvað til dundurs eins og sveitadrengir eru vanir. Gamli bærinn var reyndar orð- inn fúinn og þröngur og það fyrsta sem George gerði þegar honum fór að græðast fé var að láta rífa það að byggja þetta stóra, nýja hús með öllum nú- tímaþægindum. Síðar hafði hann keypt upp allt leigulandið í kring- urn vatnið og látið girða landar- eignina. Hann hafði fundið veru- lega til sín þegar hann fór og keypti sjálfvirku þvottavélina og sjónvarpið og borgaði með arð- inum af verðbréfaviðskiptum sínum. George gekk niður stíginn sem hann hafði svo oft hjólað sem unglingur. Stígurinn niður að vatninu var mátulega langur til að vera góð hreyfing fyrir kyrr- setumann. George hafði alltaf elskað hreyfingu og notaði hvert tækifæri til að njóta náttúrunn- ar. Hann gat aldrei nógsamlega þakkað þau forréttindi að geta komið hingað út í náttúruna og gengið niður að vatninu. Hér gat hann setið og dorgað einn síns liðs svo lengi sem hann hafði þol- inmæði til meðan félagar hans í kauphöllinni stóðu á öndinni af stressi. Það var von að hann væri öfundaðar, hann var lang efnað- astur þeirra og kunni auk þess listina að lifa. Hann var kominn að beygj- unni við gömlu eikina. Þetta var án efa fegursti staðurinn á allri landareigninni. Héðan gat hann séð yfir allt vatnið og inn í voginn þar sem gamla veiðihúsið hans Jack afa stóð. Það var hér sem hafði sprungið á hjólinu hans. Gamalli minningu Iaust niður í huga hans og bros læddist fram á varirnar. Hvað hann hafði orðið glað- ur þegar hann fékk gamla reið- hjólið hans föður síns í arf! Þetta hjól átti eftir að verða stærsti ör- lagavaldur í lífi hans þrátt fyrir að mestur tími hans færi í að lagfæra það. Það voru ófáar ferðirnar sem hann hafði hjólað þessa leið til að huga að netunum í vatninu og það voru mörg þau skipti sem hann hafði orðið að laga keðjuna eða bæta dekkin. Dagurinn, þegar sprakk á dekkinu, byrjaði ekkert ólíkt öll- um öðrum dögum. George hafði að vísu vaknað heldur seint og þegar hann loks- ins komst á fætur var Bertha búin að mjólka og móðir hans búin að gefa svínunum. Hann skammað- ist sín þótt hann væri ekki skammaður. Auðvitað gat hann vel vaknað eins og þær þótt hann hefði verið að gera við helluþak- ið meðan birtan entist um kvöld- ið. Hann ákvað að bæta fyrir let- ina með því að taka upp netin og gera við þau. Hann ætlaði að fara með þau út í gamla veiðikofann hans afa og gera við þau þar eins og pabbi hans hafði kennt hon- um í æsku. Veiðikofinn var orðinn lélegur eins og bærinn. Inni í honum stóðu tvö stór og þykk tréborð sem afi hans hafði smíðað úr eik úr skóginum og á þeirri langhlið, sem var gluggalaus, voru marg- ar hillur og skápar með veiðitól- um og viðgerðardóti. George fannst alltaf gaman að koma í veiðikofann. Þar var sérstök lykt sem ekki var hægt að lýsa, hún var eins og minning afa hans, óræð og spennandi. Það var heitt þennan dag og dekkin voru lin, það þurfti ekki meira en skarpan stein til að George stóð kyrr suolitla stund en eðl- isáuísunin sagði honum að láta lítið fara fyrir sér suo hann dró hjólið bak uið eikartréð. sprengja margviðgert dekkið að framan. George dauðbrá og hann þeyttist fram af hjólinu eins og knapi fram af fældum hesti. Hann reis upp á olnbogana og sá strax að vinstri skyrtuermin hafði rifnað alveg upp að öxl. Þar sem George brölti á fætur kom hann auga á svartan bíl á vegarslóð- anum ofan við veiðikofann. Eini bíllinn sem átti erindi niður að vatnsbakkanum var gamli pall- bíllinn hann Elmers Stacy á Chestnut Grove en þetta var ekki hann. George stóð kyrr svolitla stund en eðlisávísunin sagði hon- um að láta lítið fara fyrir sér svo hann dró hjólið bak við eikar- tréð. Bíllinn stoppaði við vegarend- ann og út út honum snöruðust tveir menn klæddir dökkum bux- um og peysum. George heyrði ekki orðaskil, en á röddum mannanna mátti greina að þeir voru æstir og reiðir. Annar þeirra sló til hins sem greip um úlnlið hans og virtist róa hann talsvert niður. Mennirnir höfðu staðið þarna nokkra stund og þráttað þegar þeir gengu hratt að bílnurn, tóku út úr honum tvær litlar ferðatöskur og hlupu að veiði- kofanum. George var ekki lífs- reyndur af tvítugum manni að vera, en hann gerði sér þó strax grein fyrir að þarna var ekki allt með felldu. Hann stóð sem stein- runninn bak við tréð og gætti þess að hjólið lægi fast við jörðu þannig að það sæist ekki frá veiðikofanum. Honum fannst líða heil eilífð það til mennirnir komu aftur út úr veiðikofanum. Þeim lá greinilega enn meira á en áður, þeir ruku inn í bílinn og Ge- orge sá hann hverfa upp á þjóð- veginn í þykkum rykmekki. Allt í einu var allt hljótt og eina Iífsmarkið í kringum George var sprungna framdekkið sem enn snerist hægt en taktfast á gjörð- inni. George leit niður og sá að blóðið lagaði úr handleggnum á honum en hann hafði ekkert fundið fyrir sárinu fyrir forvitn- inni. Hvað var þetta sem hann hafði orðið vitni að? Hann vissi 38 Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.