Vikan


Vikan - 25.07.2000, Blaðsíða 18

Vikan - 25.07.2000, Blaðsíða 18
Misnotuð kyníepöislega Það kannast flestir uið bandarísku spjallbátta- drottninguna Oprah ibemsku Wínfrey. Það eru færri sem uita huersu erfiða æsku hún átti og út úr huers konar uandamál- um hún hurfti að uinna sig til hess að uerða sú sem hún er nú. Saklutis, lílil stúlka sem ot'l |)iuTii að |)ola ýmisleyl. Oprah Winfrey hef- ur átt allt annað en auðvelt líf og erfiðleikarnir byrjuðu fljótlega eftir að hún fæddist. Foreldrar hennar áttu aðeins einn ástarfund og afleiðing hans var sú að mamma hennar varð ólétt. Vegna mikillar fátæktar neyddist móðirin, Vernita, til að skilja dótt- ur sína eftir í umsjá ömm- unnar í Miss- issippi. Sjálf hélt hún til Milwaukee í leit að vinnu. Oprah eyddi fyrstu sex árum ævinnar hjá móðurfor- eldrum sínum þar sem upp- eldið var strangt og ekki alltaf eins og best verður á kos- ið. Uiidi fá dótt- urina aftur Árið 1960 sendi Vernita síðan eftir dóttur sinni. Hún skyldi koma og búa með henni í eins herbergis íbúð í hinu ill- ræmda svert- ingjahverfi í Milwaukee. Þar bjuggu ekki aðeins mæðgur- nar tvær heldur einnig Pat- ricia, yngri hálfsystir Oprah, sem hafði komið undir við svipaðar aðstæður og Oprah sjálf. Oprah stoppaði stutt við hjá móður sinni, sem gat alls ekki séð fyrir dætrum sínum og sendi hana til föðurins og stjúpunnar til Nashville í Tennessee. Dvölin hjá föðurnum stóð stutt því að ári síðar sendi móðir hennar enn á ný eftir henni. Þegar Oprah kom í annað sinn til Milwaukee beið hennar annað hálfsystk- in, Jeffrey Lee. Oprah var ekki nema níu ára gömul þegar langt skeið kynferðislegrar áreitni hófst og átti það eftir að standa í mörg ár. Nítján ára gamall frændi hennar byrjaði að mis- nota hana en Oprah var of hrædd til að segja nokkurri manneskju frá því sem var að gerast. Henni fannst þetta einhvern veginn vera allt henni sjálfri að kenna. Frændi Oprah nauðgaði henni aftur og aftur og hún var dauð- hrædd um að verða ófrísk. Karlmenn misnotuðu hana stanslaust Telpan, sem fékk aldrei neina athygli frá móður sinni, fékk hins vegar meira en nóga athygli frá strákum og karl- mönnum allt í kringum hana. Hún var orðin eins konar leikfang margra karlmanna í fjölskyldunni, sem og vina, sem allir misnotuðu hana kynferðislega. Frændi hennar var sem sagt ekki sá eini sem beitti Oprah kynferðislegu ofbeldi, sama gerði einnig kærasti frænku hennar og föðurbróðir hennar, en báðir þessir menn nauðguðu henni og misnotuðu á hörmulegan hátt. Föðurbróðir Oprah, Trenton, hefur reyndar alltaf neitað ásökunum bróður- dóttur sinnar. Mamma Oprah ákvað að senda hana á upptökuheim- ili fyrir stúlkur þegar hún var 14 ára gömul en hún taldi sig ekki geta haft hana heirna lengur. Oprah hafði ekki miklar áhyggjur af að þurfa að fara á heimilið. Hún hafði meiri áhyggjur af því að vera orðin ófrísk en þetta ástand sitt hafði hún falið fyrir móð- ur sinni. Þar sem ekki reynd- ist vera pláss fyrir Oprah á unglingaheimilinu var hún enn á ný send til pabba síns og stjúpu. Hún var dauðhrædd við að segja föður sínum frá þunguninni og hún segir nú að það hafi verið eitt það erf- iðasta sem hún hafi nokkurn tíma þurft að gera í lífinu. Fæddi barnið fyrir tímann Þær erfiðu aðstæður og andlegt álag, sem Oprah lifði við, leiddu til þess að hún eignaðist barnið fyrir tímann. Hún hefur lengst af haldið því fram að barnið, sem var drengur, hafi fæðst andvana en staðreyndin er sú að drengurinn lifði í tvær vikur. Oprah var auðvitað miður sín þegar litli strákurinn hennar dó og þar að auki var hún mikið skemmd andlega eftir margra ára misnotkun. Hún segir að þegar hér hafi verið komið hafi hún sagt fjölskyld- 18 Vikan Vala Ósk Bergsveinsdóttir tók saman
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.