Vikan


Vikan - 25.07.2000, Blaðsíða 7

Vikan - 25.07.2000, Blaðsíða 7
Torfí er aflnirða skák- niaöur og varö Reykjavíkurnieistari í skák áriö 1996, þá aö- eins saiit ján ára gam- all. Hugaöir gestir Kaftllníssins geta ef til vill sest aö skák með Torfa. staklega próteinríkum réttum sem eru taldir mjög hollir. Leó og Guðný hafa verið grænmetisætur um margra ára skeið og hafa lesið sér mikið til í næringarfræði tengdri grænmetisfæði. Matreiðsla Kaffihússins tekur mið af næringaráætlun- inni The Zone sem hefur not- ið gífurlegra vinsælda víða um heim, meðal annars í Hollywood hjá stjörnum eins og Jennifer Aniston, Liz Hurley og Sharon Stone. Meginhugmyndin á bak við The Zone er að borða prótein, kolvetni og fitu í rétt- um hlutföllum. Mörgum hættir til að borða of mikið af kolvetnum og af því fitnar fólk. Guðný og Leó ákváðu að leggja mikla áherslu á græn- metisrétti með próteini í því af eigin reynslu þekkja þau að fólk sem borðar ekki kjöt þarf að finna aðrar leiðir til að fá nægilegt prótein úr fæðunni. „Petta mataræði byggist á því að hafa jafnvægi í líkam- anum og er ekki bara fyrir þá sem vilja léttast heldur líka þá sem vilja fá aukna orku og vellíðan.“ segir Guðný. Leó og Guðný hugsa hins vegar ekki bara um líkamlega vellíðan gesta sinna því þau ætla að vera með ýmiss konar lesefni á boðstólum sem gestir geta gluggað í yfir kaffibollunum svo og róandi tónlist. Þegar talið berst að tónlist er Leó á heimavelli. Hann hefur leikið á hljóðfæri frá unglingsaldri, verið í ýmsum hljómsveitum og setið við tónsmíðar. Hann gaf einnig út geisladiskinn Draumsýn með eigin tón- smíðum sem kom út árið 1995 og fékk mjög góða dóma. Tónlistin er nauðsyn Eins og áður sagði er Kaffi- húsið fyrst og fremst hugar- fóstur Guðnýjar og því áhugamál hennar númer eitt þessa dagana. Einkasonur þeirra, Torfi, sem rúmlega tví- tugur háskólanemi, hefur einnig áhuga á grænmetisfæð- inu en auk þess er hann af- burða skákmaður og gerði sér lítið fyrir og varð Reykjavík- urmeistari í skák árið 1996, rétt sautján ára gamall. Stærsta áhugamál Leós er hins vegar tónlistin. Hún er í raun ekki bara áhugamál heldur nauðsyn. „Mér hefur fundist mjög gaman að koma kaffihúsinu af stað því í því felst viss sköp- un. En ég finn núna að ég verð að fara að snúa mér aft- ur að tónlistinni. Tónlistin gefur mér einfaldlega sálarró og lífsfyllingu. Það er hins vegar aldrei að vita nema það sé hægt að sameina þetta með því að troða upp á kaffihús- inu. Eg gæti jafnvel spilað á gítar með annarri hendi og hellt upp á kaffi með hinni,“ segir Leó brosandi. „Nei, það er of mikið. Þú veist að karlmenn geta ekki gert tvennt í einu,“ bætir Guðný sposk við. Hvernig myndir þú lýsa tónsmíðum þínum: „Ja, þær eru bara svona eins og kaffi- húsið. Rólegar og notalegar. En að öllu gamni slepptu býst ég við að tónlist mín litist tals- vert af áhuga mínum á and- legum málefnum og aust- rænni menningu og tónlist. Ég held þó að það gæti áhrifa héðan og þaðan. Ég hef alltaf haft áhuga á öllum heimin- um en ekki bara Vesturlönd- um.“ Tónlist Leós er róandi'og svolítið fljótandi, ef þannig má að orði komast, og kyrrir hugann. En Leó hefur ekki alltaf verið á þessum nótum í tónlistinni: „Nei, ég byrjaði sem ung- lingur með þungarokkið í botni. Ég spilaði meðal ann- ars með þungarokkssveitinni Golíat og einn tónleikagestur hafði einu sinni orð á því við mig eftir tónleika hjá sveitinni að hann hefði fundið fyrir Leó, Guöný og Torfí eru öll grænniefísætur og hafa iiiikinn áhuga á hollri niatargeröarlist.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.