Vikan


Vikan - 25.07.2000, Blaðsíða 24

Vikan - 25.07.2000, Blaðsíða 24
Texti: Þorsteinn Eggertsson Dýrasálfræði Sumir segja að hundar eigi ekki heima í borgum, enda eru þær fyrst og fremst gerð- ar fyrir duttlunga mannanna. Dýrin eigi heima í sveitinni - en ætli þeim líði vel í sumar- bústöðum? Á síðustu áratugum hafa sí- fellt verið að koma fram nýj- ar hliðar á sálfræðinni, ss. dul- arsálfræði, viðskiptasálfræði, litasálfræði, öldrunarsálfræði o.fl., enda hefur því stundum verið haldið fram að sálfræð- in sé hvorki fræðileg vísinda- grein né vísindaleg fræðigrein þegar allt komi til alls. Ekki er nú víst að þetta eigi við um allar greinar sálfræðinnar, en sumar þeirra eru ekki mjög gamlar. Ein af þeim nýjustu er dýrasálfræðin svokallaða, sem byggir á þeirri kenningu að öll æðri dýr geti hugsað og að hver einstök tegund hafi sín sálrænu séreinkenni. PERSONULEIKI HUNDA OG KATTA Sumir dýrasálfræðingar hafa reynt að kafa inn í skyn- heim og eðlisvitund dýra án þess að flækja mannlegum þankagangi um of inn í þær heimspekilegu vangaveltur, en svo eru aðrir sem túlka öll hegðunarmynstur dýra út frá mannlegum forsendum. Fyr- ir mörgum árum fór banda- rískur dýrasálfræðingur í fyr- irlestraferð og hélt erindi í mörgum borgum Bandaríkj- anna, auk þess sem hann svar- aði spurningum viðstaddra. Eitt af því merkilegasta sem kom fram í þessum fyrirlestr- um var mismunurinn á per- sónuleika hunda og katta, en líklega er það ekki ný kenn- ing. I sögunni um Lísu í Undralandi er t.d. eftirfar- andi klausa: „Af hverju heldurðu að ég sé klikkuð?“ spurði Lísa. „Þú hlýtur að vera það,“ sagði kötturinn. „Annars hefðirðu ekki komið hingað.“ Lísu fannst þetta ekki sanna neitt en samt hélt hún áfram: „Og hvernig veistu að þú ert klikkaður?" „Til að byrja með eru hund- ar ekki klikkaðir, sammála?“ „Ég býst við því,“ sagði Lísa. „Þarna sérðu,“ hélt köttur- inn áfram. „Hundar urra þeg- ar þeir eru reiðir og sveifla rófunni þegar þeir eru ánægð- ir. Ég sveifla skottinu þegar ég er reiður en urra þegar ég er ánægður." „Ég kalla það nú mal en ekki urr,“ sagði Lísa. Eflaust hefur ameríski dýrasálfræðingurinn lesið söguna um Lísu í Undralandi eins og flest börn í enskumæl- andi löndurn, en hann hefur kannski kafað ögn dýpra í mismun hunda og katta, eða eins og hann segir sjálfur: HUGMYNDIR ÚLÍKRA UÝRA UM ALMÆTTIÐ „Ef dýr hefðu trúarskoðan- ir,“ segir hann, „þá tryðu hundar því að Guð væri stór og mikill maður sem hefði af náð sinni og miskunn leyft hundunum að þjóna mönn- unum sem eru af hreinrækt- uðu guðakyni. Kettir trúa því hins vegar að Guð sé gríðar- lega stór og hjartahlýr köttur sem hafi skapað mennina ein- göngu köttunum til hagræðis. Menn eiga, samkvæmt katta- trúnni, að þjóna köttum, byggja handa þeim hlý hús með þægilegum sófum og stjana við þá á allan hátt. Þetta vita allir kettir upp til hópa.“ Og dýrasálfræðingurinn heldur áfram: „Ég skal útskýra þetta ögn nánar. Þegar hundi er klapp- að, líður honum ekki beint vel nema hafa unnið fyrir strok- unum. Ef þær eru tilefnislaus- ar hugsar hann sem svo: „Hvert í þreifandi. Nú er húsbóndinn að klappa mér og ég hef ekki hugmynd um hvað ég hef unnið til þess. Ég hef ábyggilega gert eitthvað þarft eða skemmtilegt... En, oooh,hvað geturþað verið?“ Svo fer hann að reyna að rifja það upp til að geta gert það einhvern tímann seinna. Ketti finnst hins vegar ekkert at- hugavert við að láta klappa sér í tíma og ótíma. Þegar honum er klappað kannski að tilefnislausu, teygir hann úr sér og fer að mala. Og í hvert skipti sem köttur malar, þá er hann að fara með bæn til stóra kattarins á himnum og þakka honum fyrir að hafa sent sér svona góða mann- eskju. HUNDAR UG KETTIR EFTIR VINNU „Segjum að ég eigi hund,“ heldur sálfræðingurinn áfram. „Ég kem þreyttur heim úr vinnunni og langar að kíkja í blaðið. Ég er ekki fyrr kominn inn úr dyrunum en hundurinn hleypur upp og heilsar mér brosandi. En ég hlamma mér niður í stól og segi við hann, því að við skul- um ímynda okkur að við get- um talað saman á mannamáli: „Farðu nú og sæktu blaðið fyrir mig.“ „Alveg sjálfsagt, hús- bóndi,“ segir hundurinn. „Ekkert mál. Kem strax.“ Svo er hann þotinn inn í eldhús og kemur að vörmu spori með tennisspaðann minn í kjaftinum. „Hverslags fífl geturðu ver- ið?“ segi ég þá. „Ég bað þig að sækja blaðið en ekki spað- ann.“ „Æ, hvernig læt ég, heheh. Bölvaður auli get ég verið,“ segir hundurinn - og þar með er hann þotinn inn í eldhús til að sækja blaðið handa mér. Segjum hins vegar að ég eigi kött og það sama sé uppi á teningnum. Ég kem heim úr vinnunni en kötturinn liggur í leti uppi í sófa og er ekkert að hafa fyrir því að taka á móti mér, enda er hann senni- lega að hugsa um læðuna í næsta húsi. Ég hlamma mér hins vegar niður í stólinn, andvarpa og segi við hann: „Æ, farðu nú og sæktu blaðið fyrir mig.“ Þá lyftir kötturinn aðeins til höfðinu, starir á mig undrandi og næstum móðgaður og seg- ir: „HVAÐ?“ DÝR í SUMARRÚSTÖDUM Svo mörg voru orð dýrasál- fræðingsins en það hefði ver- ið forvitnilegt að vita hvað hann segði um sálarlíf hesta og sauðfjár eða samkvæmis- páfagauka, hamstra og jafn- vel gullfiska. Líklega geta þó flestir verið sammála um að lítil dýr eiga ekkert erindi í sumarbústaði. Þau eru vana- föst og heimakær í eðli sínu, jafnvel kettir. Þeim finnst að vísu nauðsynlegt að flakka svolítið um; hitta vini og kunningja og segja þeim nýj- ustu kjaftasögurnar, en samt vilja þeir hafa einhvern fast- an punkt í tilverunni, enda eru þeir annálaðir fyrir rat- vísi. Jafnvel þótt þeir fari á margra daga útstáelsi í allt öðru hverfi. Öðru máli gegn- ir um hesta og margar hunda- tegundir. Hestar eru vanir langferðum. Auk þess vita þeir ósköp vel að húsbændur þeirra eru mun skárri en allir aðrir menn, enda skapast gjarnan ákveðið skilnings- samband á milli hests og hús- bónda hans. Hundar vita fátt verra en að vera skildir eftir heima, jafnvel þótt einhver manneskja líti eftir þeim. Þá er illskárra að fara í framandi umhverfi með eigandanum. Auðvitað þarf margt að kanna á nýjum stað og það tekur sinn tíma - en öllu má venjast. Jafnvel fyrir þann sem lifir ósviknu hundalífi. 24 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.