Vikan


Vikan - 25.07.2000, Blaðsíða 50

Vikan - 25.07.2000, Blaðsíða 50
 Sigurftur Þorsteinsson er inni- varðstjóri hjá slökkviliftinu, efta SHBS (Slökkvilift höfuftborgar- svæftisins). Á hverri vakt hjá Neyftarlínunni er alltaf cinn slökkviliftsniaftur seni svarar í síina og sinnir því sem snýr aft SHBS. Á vakt voru cinnig neyft- arsíniverftirnir Anna Jóhannes- dóttir, fyrrum vaktstjóri á veit- ingastaft, og Ármann Gestsson sálfræftinemi. Starfsnicnn hafa víðtæka reynslu og eiga þaft sanieiginlegt að vera liprir í mannleguni saniskiptuni en á þaft er mikil áhersla lögft af hálfu Nevftarlínunnar. ana á þeirri stundu." Sum símtöl sem berast eru óvenjuleg svo ekki sé meira sagt. Ungur drengur hringdi í öngum sínum til Neyðarlín- unnar og sagði að hundurinn hans væri að deyja. Neyðar- símvörðurinn heyrði hryglu- kenndan andardrátt hundsins og taldi víst að eitthvað stæði í honum. Hann ráðlagði drengnum að leggja hundinn á bakið og þrýsta snöggt á maga hans. I annarri tilraun hrökk aðskotahlutur upp úr hundinum og drengurinn heyrðist hrópa: „Hann er lif- andi, hann er lifandi. Þakka þér fyrir.“ Svo skellti sá stutti á. Aluara lífsíns „Við lendum stundum í því að fólk í sjálfsmorðshugleið- ingum hringir til okkar,“ seg- ir Bergsveinn alvarlegur á svip. „Því miður getum við ekki alltaf gefið því nægan tíma vegna anna en reynum alltaf að tala við það um stund eða bendum því á að hringja í Vinalínuna eða sambærilega þjónustu áður en við gefum því samband við lögregluna. Við höfum öll fengið kennslu hjá sálfræðingi í meðferð slíkra mála og við vitum af til- fellum þar sem okkur hefur, ásamt lögreglunni, tekist að telja fólk ofan af því að fremja sjálfsmorð. Svo höfum við fengið símtöl frá þessu sama fólki síðar þar sem það þakk- ar okkur fyrir hjálpina og það er alltaf ánægjulegt.“ Bergsveinn þarf ekki að hugsa sig lengi um þegar hann er spurður um það hvað sé erfiðast við þetta starf og seg- ir hann það tengjast því þeg- ar eitthvað kemur fyrir börn. „Ég man eftir einu máli þar sem illa hefði getað farið en allt endaði sem betur fer vel,“ segir hann. „Ég nota upptök- una af þessu símtali við kennslu hjá nýjum neyðar- símvörðum,“ heldur hann áfram. „Unglingspiltur var að gæta lítillar systur sinnar þeg- ar hún blánaði skyndilega upp og hætti að anda. Hann hljóp með hana í fanginu yfir til nágrannakonu sinnar og hún hringdi beint í okkur. Hún var eðlilega í töluverðu uppnámi en hélt þó ró sinni. Sjúkrabíll var sendur strax af stað þegar hún hafði lýst ástandi barnsins. I fram- haldi af því var hún spurð betur út úr og við vild- um fá að vita hvort stúlkan hefði verið eitt- hvað veik. Hún spurði bróðurinn sem sagði að hún hefði verið með mikinn hita. Þá var talið líklegt að telpan gæti verið með hitakrampa. Henni var ráðlagt að afklæða hana, blása á hörund hennar og jafnvel strjúka henni með blautum þvottapoka. A með- an þetta fór fram var neyðar- símvörðurinn í stöðugu sam- bandi við sjúkrabílinn til að gefa þeim leiðbeiningar um staðsetningu íbúðarinnar og hvað biði þeirra á staðnum. Ungi pilturinn færði systur sína úr fötunum og fór í öllu eftir leiðbeiningum sem ná- grannakonan fékk í gegnum símann. Stuttu síðar heyrðist hann hrópa að hún væri farin að anda og hörundslitur hennar væri að verða eðlileg- ur,“ segir Bergsveinn bros- andi. „Um svipað leyti kom sjúkraliðið á vettvang og litla stúlkan var flutt á sjúkrahús til öryggis," bætir hann við. „Það hefur mikið að segja ef fólk heldur ró sinni og getur sagt okkur nákvæmlega hvað sé í gangi. Einu sinni varð harður árekstur í Reykjavík og við fengum símtal frá öðr- um ökumanninum sem bað okkur um að senda sjúkrabíl því einhver slys höfðu orðið Óhætt er að fullyrða að vaktstöð Neyðarlínunnar sé ein sú fullkomnasta í Evrópu. Þar vinna 20 starfsmenn sem skipta með sér vinnu á 12 tíma vöktum. Hugbúnaður og tækni- búnaður er með því besta sem þekkist. Neyðarlínan ræsir út réttu aðilana á hverjum stað en hefur mismunandi aðferð- ir við það. í gagnagrunni Neyðarlínunnar eru upplýsingar um 37 lögreglustöðvar, 79 slökkvilið, um 30 læknaembætti og 46 sjúkraflutningalið. Öll símtöl eru hljóðrituð og því er hægt að hlusta á þau aftur ef þarf. á mönnum. Lið var sent af stað og áfram var haldið, eins og venjulega, að spyrja nán- ar út í allar aðstæður. Farþegi í bílnum sem hlustaði á sím- talið varð óþolinmóður þegar hann heyrði bílstjórann svara spurningunum og sagði við hann: „Skelltu bara á og hringdu aftur.“ Hann virðist ekki hafa gert sér grein fyrir því að sjúkraliðið væri lagt af stað og þessar upplýsingar eru til að vita hvers konar hjálp er nauðsynleg. Kannski þarf að senda tækjabíl með klippur en við komumst ekki að neinu slíku nema spyrja fólk út úr. Við leiðbeinum fólki í gegnum síma um með- höndlun slasaðra og sjúkra, ef með þarf, á meðan það bíður eftir aðstoð. Neyðarliðar þurfa að fá góðar leiðbeining- ar og upplýsingar um hvar í húsinu hjálpar sé þörf, hvar árekstur varð eða hvert ástand sjúklings sé. Greinar- góðar upplýsingar geta skipt sköpum fyrir þá sem eru á leið á slysstað eða í heima- hús,“ segir Bergsveinn. „Oft höfum við skamman tíma til að hugsa okkur um og þá skiptir þjálfun og reynsla miklu máli,“ bætir hann við. Áuallt uiðbúin öllu „Við röðum tegund símtala í vissa forgangsröð,“ segir Bergsveinn. „Þegar beðið er um sjúkrabifreið er flutning- urinn flokkaður eftir kerfi sem fengið var frá Pittsburg í Bandaríkjunum. Hingað komu kennarar sem kenndu starfsmönnum Neyðarlín- unnar. Sem dæmi má nefna að í forgangi númer eitt eru karl- menn, 35 ára og eldri, með verk fyrir brjósti. Það gæti þýtt að viðkomandi hafi feng- ið hjartaáfall,“ segir hann. „Konur eru heppnari og rninni líkur eru á því að þær fái hjartaáfall fyrr en þær eru orðnar mun eldri en 35 ára. En allt getur gerst og við verðum að vera viðbúin hverju sem er,“ segir Berg- sveinn að lokum. 50 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.