Vikan


Vikan - 01.08.2000, Page 25

Vikan - 01.08.2000, Page 25
1 afhverjum 100 jaröarhúum sem er á aldrinum 15-49 ára og stundar kynlíl' er með HIV veiruna, en aðeins 1 af hverj- um 10 veil af því. Nærri 40 milljónir manna í heiminum eru nú smitaðir af Alnæmi og á hverjum degi bætast a.m.k. 16 þúsund manns í hópinn. Sífellt stærri hópur gagnkynhneigðra kvenna smitast af Alnæmi og ungar kon- ur eru sá hópur sem vex langhraðasl. 2/3 hlutarþess fólkssem smitast af kyn- sjúkdómum er undir 25 ára aldri. ann um smitleiðirnar, um hvernig þessir sjúkdómar leiki fórnarlömbin og hvern- igmegi verjastþeim. Foreldr- ar og aðrir forráðamenn bera ábyrgð, skólarnir bera ábyrgð, ríkið ber ábyrgð og fjölmiðlar bera ábyrgð. Við berum öll ábyrgð á því að ungir Islendingar geti varið sig gegn þessari vá. Að þessu sinni fylgir Vik- unni ein verja og við vonum að hún komi að góðum not- um. Best væri ef hún væri gef- in einhverjum sem hugsan- lega er að byrja að njóta kyn- lífs og að henni fylgdu nokk- ur orð um það hversu mikils virði það sé að nota verjur. Bæði stelpur og strákar verða að skilja að þau bera sjálf ábyrgð á kynlífi sínu og að hættan sé mest þegar fólk er ekki í föstu sambandi. Unga fólkið verður að fá að vita að það sé engin afsökun fyrir því að nota ekki verjur. Strákar verða að vita að þeir séu að verja sjálfa sig með því að nota verjur. Stelpur verða að vita að þær eigi rétt á því að vera virtar og að rétt- ur þeirra til að nota verjur við samfarir sé sjálfsagður. Til eru margar lélegar afsakanir og stelpurnar verða að kunna svör við þeim þegar á hólm- inn er komið: AfSÖkun 1: „Maður nýtur þess ekki eins vel þegar mað- ur notar smokk.“ Svar: „Það er mjög góð til- finning að vera öruggur og maður nýtur kynlífsins miklu betur. Við skulum finna góð- an smokk og við getum not- að mjúkt krem inn í hann og það verður örugglega gott.“ Og ef það dugar ekki: „Því miður, ég mun ekki njóta þess án smokksins og þá vil ég frekar sleppa þessu." AfSÖkun 2: „Smokkarnir passa aldrei, þeir renna bara til.“ Svar: “Þá hefur þú ekki Það eru ekki margir ára- tugir síðan öruggt kynlíf miðaðíst aðeins við að samfarir hefðu ekki í för með sér ótímabæra hung- un. í dag eru hætturnar í kynlífinu mun meira ógn- vekjandi. Ekki bara ótímabær bungun Margir hættulegir sjúk- dómar smitast við samfarir og eru einu nafni kallaðir kyn- sjúkdómar. Flestir þessara sjúkdóma hafa lengi verið þekktir og fólk hefur vitað um smitleiðirnar. Allir eru þeir hættulegir og hafa vald- ið hræðslu meðal fólks en þrátt fyrir það hefur ríkt eins konar þagnarmúr í kringum kynsjúkdóma, kannski aðal- lega vegna þess að á íslandi þótti minnkun að því að smit- ast af þeim. Flér á landi hafa margir kynsjúkdómar smitast milli manna og nú er staðan þannig að klamidía er svo út- breidd að sumir líkja því við faraldur. Skæðasti sjúkdómurinn sem smitast við samfarir er al- næmi en hann dregur á hverj- um degi um 3000 manns í heiminum til dauða, þar af um 500 konur á barneigna- aldri. Þögnin hættuleg Þögnin og vanþekkingin eiga stóran þátt í því hversu margir smitast og deyja af völdum sjúkdóma sem smit- ast við samfarir og þá ábyrgð verðum við öll að axla. Rann- sóknir í mörgum löndum hafa því miður sýnt að aðeins um helmingur unglinga notar verjur við samfarir sem er mjög alvarlegt mál þegar vit- að er að hægt er að koma í veg fyrir smit á hættulegum sjúk- dómum með notkun verja. Ungt fólk á rétt á að vita um hættuna á smiti, það á rétt á að vera leitt í allan sannleik- prófað almennilega smokka. Þeir eru til í ýmsum stærðum og gerðum. Prófum bara nokkra, við getum haft tísku- sýningu!" Og ef þetta svar dugar ekki: „Því miður, þú ert ekki nógu jákvæður elskhugi fyrir minn srnekk." Afsökun 3: „Þeir eru alltaf of þröngir og meiða mig.“ Svar: „Þá förum við og kaupum XL handa þér.“ Og ef þetta dugar ekki: „Þú ert örugglega of stór fyrir mig fyrst smokkar eru of þröngir fyrir þig. Ég verð að sleppa þessu.“ Sú tíð að smokkar reyndust vera óþægilegir er liðin. Það er engin afsökun fyrir því að nota smokka lengur, það vita þeir sem hafa reynt Rollsinn á markaðnum. Vikan sendir lesendum sínum þann flottasta á markaðnum með þessu tölublaði. Þessi verja er uppfinning indversks skurð- læknis og alger nýjung. Hon- um má líkja við bestu gerð af túrbó sportbíl sem er jafn þægilegur fyrir bæði öku- mann og farþega. En lýsing- arorð duga ekki, hver og einn verður að reyna sjálfur. Byrgjum brunninn... Vikan 25 Texti: Jóhanna H a r ð a r d ó 11 i r

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.