Vikan - 19.09.2000, Side 4
Kæii lesandi
Fallegap konur og lorljótir karlaienn
Mér til mikillar
ánœgju sýndi
Ríkissjónvarpið
nýlega hina sí-
gildu og hugljúfu kvikmynd um
Mary Poppins. Mérfannst
gaman að upplifa myndina
með fjögurra ára gamalli
frœnku minni sem var hreint út
sagt hugfangin af myndinni.
Það vakna angurvœrar tilfinn-
ingar innra með manni þegar
horft er á kvikmyndir frá
æskuárunum. Þar sem við sát-
um þarna tvœr á rúmstokknum
og drukkum í okkur myndina
skaut einni bernskuminningu
upp í kollinum á mér sem
hafði legið í dvala til þessa.
Eg var u.þ.b.fimm ára gömul
þegar égfór í bíó með mömmu
að sjá Mary Poppins og lifði
mig inn í myndina eins og
barna er háttur. Nokkrum dög-
um síðar var ég í heimsókn hjá
ömmu minni sem átti svarta,
stóra og dularfulla regnhlíf
sem var alltafá sínum stað í
fatahenginu. Eg ákvað að um-
breyta mér í hina glæsilegu
fröken Mary Poppins, þreif
regnhlífina og læddist ofur
varlega út á svalir. Eg klifraði
upp á svalahandriðið, spennti
upp regnhlífina með eifiðis-
munum og stóð teinrétt og
hoifði yfir heiminn, að mér
fannst, en ég var á annarri
liœð. Ég fylltistfrelsistilfinn-
ingu, stökk upp í loftið með
regnhlífina hátt yfir höfði mér
og bjóst að sjálfsögðu við að
svífa til jarðar.
Leifturhratt hrapaði ég niður
á grasið og kveinkaði mér við
höggið. Svo lagðist ég á bakið,
horfði með undrunarsvip upp í
heiðan himininn og veltifyrir
mér hvers vegna amma œtti
svona lélega regnhlíf
Eftir þessa uppákomu var sest
niður með mér og reynt að
leiða mérfyrir sjónir að kvik-
myndir vœru bara plat. Ég
varð fyrir gífurlegum von-
brigðum þennan dag þegar
hluti bernskusakleysisins vék
fyrir raunveruleikanum. Enn í
dag þoli ég ekki regnhlífar ...
Morguninn eftir að ég rifjaði
upp Mary Poppins horfði ég
með sömu litlu frænkunni á
teiknimynd um Öskubusku.
Þetta gamla ævintýri tók á sig
nýja mynd þegar ég hoifði á
það með gagnrýnum augum
fullorðinnar konu. Það er
óþaifi að rekja söguþráðinn,
sem allir hljóta að þekkja, en
itiikið fór það fyrir brjóstið á
mér þegar prinsinn valdi eig-
inkonu sína eingöngu útfrá
útliti. ,,Þú ert fallegasta stúlka
sem ég hefséð, “ sagði hann
aðdáunaifullri röddu og þar
með ákvað hann að giftast
henni. Öskubuska greyið Itafði
verið látin þrœla á heimili
sínu hjá vondu stjúpmóður-
inni, á meðan faðir hennar
dvaldi lengi í burtu, og sætti
hreinni misnotkun og van-
rækslu. En hún sagði pabba
sínum aldreifrá því. Hver eru
skilaboðin? Þau eru áþann
veg að það sé allt í lagi að
fara illa með börn og ung-
linga, það sé ekki refsivert at-
hæfi. En aðalskilaboðin eru
auðvitað þau að ytri fegurð
skipti konur mestu máli í líf-
inu. Þá hreppi þœr nefnilega
hinn eina sanna prins og lifi
hamingjusamar til œviloka.
En svo erþað ævintýrið um
Fríðu (spáið í nafngiftina) og
dýrið. Hin gullfallega stúlka
verður ástfangin afhinu for-
Ijóta og skapilla dýri en það á
víst að kenna litlum stúlkum
að útlit karlpeningsins skipti
engu máli. Sem sagt; konur
eiga að velja sér skrímsli fyrir
maka en karlmenn hreppa
ávallt fallegu stúlkuna. Er ekki
veröldin ósanngjörn ?
Vikan er á heilsusamlegum
nótum að þessu sinni. Við rœð-
um við lœkni sem hefur mikinn
áhuga á hollu mataræði og
gefur ómetanleg ráð íþeim
efnum. Greinin um hugræna
atferlismeðferð lýtur að því
hvernig breyta megi hegðun-
armynstri fólks, m.a. þeirra
sem þjást afþunglyndi, án
lyfja. Ekki er allt salat sem
sýnist er áhugaverð grein um
livað beri að liafa í huga þeg-
ar salat er annars vegar. Við
erum með nýja smásögu,
kynningu á spennandi undir-
fatnaði, skemmtum okkur yfir
mistökum í sjónvarpi og margt
fleira fyndið og frœðandi er að
finna í blaðinu.
Njóttu Vikunnar!
Hrund Hauksdóttir,
ritstjóri
Ritstjórar: Jóhanna G. Harðardóttir og Hrund Hauksdóttir,
vikan@frodi.is. Útgefandi: Fróði hf. Seljavegi 2, sími: 515 5500
fax: 515 5599. Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson.
Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðviksson, sími: 515 5515.
Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir, simi: 515 5512.
Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Gunnhildur Lily
Magnúsdóttir, Guðríður Haraldsdóttir og Margrét V. Helgadóttir.
Auglýsingastjórar: Ingunn B. Sigurjónsdóttir og Sigríður
Sigurjónsdóttir vikanaugl@frodi.is.
Grafiskur hönnuður: Guðmundur Ragnar Steingrímsson.
Verð i lausasölu 459 kr. Verð í áskrift ef greitt er með greiðslukorti
344 kr. á eintak. Ef greitt er með gíróseðli 390 kr. á eintak.
Litgreining og myndvinnsla: Fróði hf. Unnið í Prentsmiðjunni
Odda hf. Óll réttindi áskilin varðandi efni og myndir.
Áskriftarsími:
515 5555