Vikan


Vikan - 19.09.2000, Síða 25

Vikan - 19.09.2000, Síða 25
alfræðibækur fyrir ungu kyn- slóðina. Uti í garðinum lá rauði plaststrætóinn á hlið- inni og brúni pappírspokinn bærðist í vindinum ofan á einni páskaliljunni. Dóri, besti vinur Tomma, starði á kökuna sem nú var farin að líkjast sexhyrndri út- gáfu af skakka turninum í Písa. „Hvað á þetta eiginlega að vera?“ spurði hann hárri röddu. „Þetta er kastali, Dóri minn," svaraði ég og reyndi að halda stillingu minni. „Oj bara, ég þoli ekki kast- alaköku,“ tilkynnti hann. Þessi yfirlýsing hljómaði eins og listaverkið, sem ég hafði verið svo stolt af, væri ekki merkilegra en spælt egg. Ég sneri mér undan til þess að láta ekki undan freisting- unni að núa hausnum á hon- um upp úr kreminu og var næstum dottin um Róbert, Einsteininn í bekknum. „Hvar er virkisgröfin?“ spurði hann. „Hvað áttu við?“ „Það byggir enginn kastala án þess að grafa virkisgröf í kringum hann.“ Ég gat ekki varist því að óska þess að hafa virkisgröf við hendina. Ég hefði vel getað hugsað mér að drekkja Róbert í einni slíkri. Veislan gekk eins vel og hægt er að ætlast til þar sem tólf ofvirkir krakkar eru sam- ankomnir. Einu stelpurnar í hópnum, tvíburar með ljós- rautt hár, neituðu að borða einn einasta munnbita. Hvers vegna veit ég ekki; kannski voru þær í megrun og kannski voru þær að koma beint úr öðru afmæli. Pési bætti úr því með því að innbyrða allt sem tönn á festi. Töframaðurinn bankaði upp á um það leyti sem allir voru búnir að borða nægju sína. Þetta var eldri maður og ég hafði fundið nafnið hans í gulu síðunum í símaskránni. Launin sem hann fór fram á sköguðu hátt upp í útborgun á alvörukastala. Kristófer, sem býr hinum megin við göt- una, stundi og sagði stundar- hátt: „Ég hef séð hann áður. Hann var í afmælinu hans Óla frænda í fyrra. Hann er hund- leiðinlegur." Hann lýsti sam- viskusamlega öllum töfra- brögðunum fyrir gestunum jafnóðum og þau voru fram- in. Mér varð litið á Pésa. Hann sat með hnyklaðar brýr og horfði einbeittur á svart- klæddan anninn sem mótaði hunda úr blöðrum, lét vasaklúta hverfa og appelsínusafa rigna niður úr loftinu. Mömmur og pabbar tóku að birtast um hálfsjöleytið og það var mikill handagangur í öskjunni meðan leitað var að yfirhöfnum og blöðrum. Að skilnaði fengu afmælisgest- irnir sælgætispoka til þess að taka með sér heim. „Það var miklu meira nammi í pokun- um sem við fengum í afmæl- inu hans Jónsa,“ sagði einn gestanna fyrirlitlega að skiln- aði. Það leið hálftími áður en ég uppgötvaði að Pési var enn á staðnum. „Þú ættir kannski að hringja í mömmu þína, Pési,“ sagði ég. „Síminn er lokaður,“ svar- aði hann eins og ekkert væri eðlilegra. Fullorðna fólkið var búið að skála samviskusamlega í hvítvíni fyrir afmælisbarninu og enginn bauðst til þess að keyra hann heim. Tommi var kominn í nátt- fötin og barðist við að halda augunum opnum þegar hlaðið tveimur klukkustund- um seinna í gömlum, ryðguð- um bíl. Hann flautaði fyrir utan og Pési þaut út um dyrn- ar án þess að muna eftir sæl- gætispokanum sínum. Ég gat ekki varist hlátri þegar ég leit á eiginmann minn: „Hann hafði ekki einu sinni fyrir því að kveðja!“ Næst þegar ég sótti Tomma í skólann heyrði ég litla rödd segja: „Tomma mamma, Tomma mamma!“ Ég leit niður og kom auga á úfið hár, útstandandi eyru og súkkulaðibrún augu. Pési horfði á mig alvarleg- um augum. „Mér þykir svo vænt um þig,“ sagði hann. Aður en ég kom upp orði tók hann til fótanna og hvarf inn í hóp lítilla andlita. Það þarf líklega ekki að taka það fram að Pési verður efstur á afmælisgestalistanum næsta ár. Hvað hina litlu englana varðar þá hef ég heila tólf mánuði til þess að undir- búa mig andlega áður en 16. mars rennur upp á nýjan leik.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.