Vikan - 19.09.2000, Qupperneq 27
fllúreí fyrr hafa konur
haft úr meíra úrvali
getnaðarvarna að velja.
Það er auðvelt að nálg-
ast hær og flestum
finnst núorðið eðlílegur
hlutur að koma við í ap-
ótekinu að kaupa pilluna
eða smokka. Af hverju
taka há svona margar
vel gefnar ungar konur
„sénsa“ hegar kemur að
kynlífinu, hugsaekkium
getnaðarvarnir og taka
áhættu á hví að verða
ófrískar eða smitast af
kynsjúkdómum?
Linda var nýflutt inn
til kærastans síns en
það voru þegar
komnir brestir í
sambandið þar sem tilhugalíf-
inu var nú lokið. Þau rifust oft
í viku, áttu í peningavandræð-
um og veltu því bæði fyrir sér
í laumi hvort þau hefðu gert
alvarleg mistök með því að
flytja saman. Þau vissu bæði
að þau voru alls ekki tilbúin
að eignast barn saman en
samt voru þau mjög kærulaus
þegar kom að getnaðarvörn-
um. Afhverju?
„Við vissum það alveg að
við vorum engan veginn í
stakk búin til að eignast barn.
Við sváfum aldrei saman þeg-
ar ég hélt að ég hefði egglos
og stunduðum líka rofnar
samfarir en aðrar getnaðar-
varnir voru ekki í spilinu. Ein-
hverra hluta vegna var ég
bara svo viss um að ég yrði
ekki ófrísk,“ segir Linda.
En reyndin var önnur og
einn morguninn fékk Linda
áfall inni á baði þegar hún átt-
aði sig á því að hún var kom-
in fimm daga fram yfir. Hún
rauk út í apótek, tók þungun-
arpróf inni á baði og beið eft-
ir niðurstöðunni milli vonar
og ótta. Niðurstaðan var blá,
heiðblá! Það er að segja já-
kvæð. Linda var ófrísk og
vissi ekki sitt rjúkandi ráð.
„Eg ræddi lengi við kærast-
ann og hann reyndist mér vel
þótt sambandið sem slfkt væri
ekki upp á marga fiska. Ég
ákvað að fara í fóstureyðingu
en mér leið ömurlega illa yfir
því. Ég var kona á þrítugs-
aldri í ágætri vinnu en samt
fannst mér ég ekki geta eign-
ast barn. Ég var þunglynd
lengi eftir fóstureyðinguna og
fannst ég mjög vond mann-
eskja. Ég hætti með kærastan-
um nokkrum mánuðum
seinna og hef aldrei tekið
neina áhættu varðandi getn-
aðarvamir síðan. Ég ætla ekki
að ganga í gegnum aðra fóst-
ureyðingu.“
flllt fyrir spennuna
Sennilega er saga Lindu allt
of algeng ef mið er tekið af
fjölda fóstureyðinga hérlend-
is á undanförnum árum, svo
ekki sé minnst á alla kynsjúk-
dómana sem geta smitast
með þessum hætti.
Samt sem áður taka marg-
ar vel gefnar og vel menntað-
ar konur áhættuna sem því
fylgir að sofa hjá án getnaðar-
varna. Þær þurfa kannski ekki
að hafa áhyggjur af kynsjúk-
dómum ef þær eru í föstu
sambandi. Þær ætla sér ekki
að verða ófrískar en verða
það samt vegna þess að þær
nota ekki getnaðarvarnir. í
þessum tilvikum er ekki um
að kenna fáfræði eða slæmu
aðgengi að getnaðarvörnum.
Hér kemur eitthvað annað til
sögunnar.
Sálfræðingar og aðrir sér-
fræðingar í heilbrigðisgeiran-
um hafa ýmsar skýringar á
þessari hegðun fólks.
I fyrsta lagi er mikil áhersla
lögð á getnaðarvarnir ung-
linga en þeir sem komnir eru
á þrítugsaldur virðast gleym-
ast. Það getur valdið því að
fólk verður kærulausara með
aldrinum. Það telur sjálfu sér
trú um að það sé ekki lengur
í þeim hópi sem eignast slysa-
börn, eins og konur á þrítugs-
aldri séu komnar úr barneign!
Auk þess liggur það í hlut-
arins eðli að það er kannski
ekki alveg jafnmikið mál að
verða ófrísk á þrítugsaldri
eins og á táningsaldri þótt
þungunin hafi ekki verið fyr-
irfram ákveðin.
I öðru lagi segjast sumir
sérfræðingar greina óheilla-
vænlega þróun meðal fólks á
þrítugsaldri sem lítur á kyn-
líf sem rússneska rúllettu. Við
tökum öll einhverja áhættu í
lífinu, t.d. bara með því að
keyra bíl, reykja eða stunda
áhættusamar íþróttir en sam-
kvæmt því sem sumir sálfræð-
ingar segja nota sumir engar
getnaðarvarnir til að auka
spennuna í kynlífinu og vegna
þess að þeir eru sannfærðir
um að ekkert slæmt geti hent
þá á því sviði eða öðrum.
Þetta fólk vill í raun storka ör-
lögunum og komast upp með
það.
ÚYrjósemi
I þriðja lagi hefur mikil um-
ræða um ófrjósemi meðal
fólks á þrítugs- og fertugsaldri
orðið til þess að sumir trúa því
einfaldlega að það sé ákaflega
erfitt að geta barn. Sannleik-
urinn er samt sá að algjör
ófrjósemi er sjaldgæf og yfir
90% þeirra para sem reyna að
geta barn tekst það á innan
við tveimur árum. Sumar
konur og sennilega einhverj-
ir karlmenn eru því orðin svo
gegnsýrð af öllum þessum
upplýsingum um ófrjósemi,
sæðisbanka og glasafrjóvgan-
ir, svo eitthvað sé nefnt, að
þau hætta að nota getnaðar-
varnir til þess eins að komast
að því hvort þau geti virkilega
búið til barn. Þegar það síð-
an tekst er gleðin oft skamm-
vinn því þó að frjósemin sé
góð er þungunin sem slík
kannski ekki gleðiefni.
í fjórða lagi finna flestar
barnlausar konur, sérstaklega
konur á framabraut, fyrir
þrýstingi frá umhverfinu ef
þær verða ekki ófrískar eftir
ákveðið langan tíma í sam-
bandi. Sumar hætta að nota
getnaðarvarnir með hálfum
huga til þess að sanna fyrir
sjálfum sér og öðrum að þær
geti orðið ófrískar. Aðrar
hafa heyrt mæður hamra mik-
ið á því að jafnvel þótt hægt sé
að skipuleggja lífið á öðrum
sviðum sé ekki hægt að skipu-
leggja barneignir og það sé
hreint og beint óeðlilegt! Þær
hugsa því með sér að ef ekki
sé hægt að skipuleggja barn-
eignir sé alveg eins gott að
drífa í þessu þótt tímasetning-
in sé kolröng.
Pillan og smokkurinn
Flestir fá sína helstu fræðslu
um getnaðarvarnir hjá vinum
sínum og konur ræða t.d. oft
um hvort þessi pillutegund sé
betri en hin eða hvort smokk-
urinn breyti miklu fyrir þær.
Ungt fólk hugsar helst um
pilluna eða smokkinn þegar
rætt er um getnaðarvarnir og
ef þær varnir gagnast illa
hætta margir algjörlega að
nota getnaðarvarnir í stað
þess að leita annarra leiða.
Pillan hefur að einhverju
leyti átt undir högg að sækja
og margar konur telja hana
afar óholla en sannleikurinn
er sá að bæði fóstureyðing og
meðganga leggja mun meira
á líkama konunnar heldur en
pilla með litlu hormónainni-
haldi. Ef pillan eða smokkur-
inn gagnast illa er því ráð að
leita til heimilslæknisins, í
stað þess að gefast upp, og fá
hann til að mæla með annars
konar getnaðarvörnum.
Að lokum ættu þó allir að
hafa í huga að nýhafið ástar-
samband sem ber ávöxt er
ekki dæmt til að mistakast.
Börn eru yndisleg og þótt töl-
fræðin sé ykkur ekki hliðholl
er aldrei að vita nema þið get-
ið haldið ástinni á lífi og fund-
ið henni nýjan farveg með
nýjum fjölskyldumeðlim.
Vikan
27