Vikan - 19.09.2000, Blaðsíða 31
legt er að taka tillit til breyttra
hátta viðskiptavinanna.
Fítuskertur matur bragð-
ast oft ekki eins uei
Vandamálið við fituskerta eða
fitusnauða rétti er að þeir bragð-
ast oftast alls ekki eins vel og hin-
ir. Tilraunir með fituminni sam-
lokur og hamborgara hafa til
dæmis algjörlega mistekist í
Bandaríkjunum. Fólk reynir að
borða fituminni mat en auðvit-
að vill það að maturinn sé bragð-
góður og kannanir sýna að þó svo
að fólk reyni að kaupa matvöru
sem er fituminni og með færri
hitaeiningum þá kaupir það vör-
una ekki ef þvf finnst hún
bragðvond.
Leyndardómurinn á bak við
allar þessar vangaveltur er að
velja einfaldlega mat sem er fitu-
lítill frá náttúrunnar hendi, frek-
ar en að velja eitthvað sem er til-
búin, fituskert útgáfa af fitandi
mat.
Úhætt að borða úti ef...
Er þá enn mögulegt að fara á
veitingahús eða borða skyndibita
án þess að eyðileggja heilsusam-
lega mataræðið? Linden Costa-
in segir að það velti auðvitað á
því hversu oft sé farið á veitinga-
hús. „Ef fólk fer út að borða að-
eins einu sinni á þriggja vikna
fresti er því óhætt að velja sér
hvað sem það vill. Fari fólk oft í
viku á veitingahús þarf það að
hugsa svolítið um hvað það vel-
ur sér af matseðlinum. Það á ekki
að vera mikið vandamál að borða
góðan mat sem er bæði fituh'till
og bragðgóður." Hún segir að
grundvallarreglan sé að forðast
djúpsteiktan, rjómalagaðan, ol-
íuborinn mat og alls kyns mat í
deigi. Fólk eigi að leita að mat á
matseðlinum sem sé soðinn,
gufusoðinn, grillaður eða kola-
grillaður. Ennfremur er í lagi að
borða mat sem er bakaður eða
eldaður í eiginn safa, í tómatsafa
eða léttvíni, svo og snöggsteiktan
mat. Best er að forðast eins og
heitan eldinn þá rétti sem lýst er
sem rjómalöguðum, djúpsteikt-
um, í hollandaisesósu,
gratíneruðum, í kókoshnetu-
mjólk, pönnusteiktum, í croute-
eða bechamelsósu.
Japanskurmatur
Margur japanskur matur er
dýr en sashimi (þunnar sneiðar af
hráum fiski), sushi, hrísgrjón og
núðlur gera flestum gott eitt.
Nánast allir japanskir réttir inni-
halda lítið af fitu og sú fita sem í
þeim er kemur yfirleitt úr fiski og
er þá ómettuð. Rétt er fyrir þá
sem vilja halda í við sig að sleppa
tempura sem er t.d. djúpsteiktur
fiskur, skelfiskur eða grænmeti.
Franskur matur
Rétt er að velja sér einfalda
rétti sem ekki eru bornir fram í
rjómasósum auk þess sem hafa
verður í huga að osturinn er æv-
inlega fitandi.
ítalskur matur
Góðu fréttirnar varðandi
ítalska matinn er að bæði pizza
og pasta getur verið góður og
heilsusamlegur kostur. Sé pizz-
an þunn og stökk er hún góð en
því þykkari sem hún verður þeim
mun fleiri verða hitaeiningarn-
ar. Sé aukaosti eða olíum bætt
ofan á fer málið að vandast.
Bestu ítölsku veitingahúsin bera
fram sjávarréttapizzur án þess að
hafa ost ofan á þeim. Þær bragð-
ast betur, segja Italirnir. Þunn og
stökk pizza fyrir einn með osti og
tómötum er sögð innihalda um
700 hitaeiningar en sé ostinum
sleppt verða hitaeiningarnar að-
eins um 500. Pasta með tómat-
eða grænmetissósu er gott en rétt
er að fara varlega þegar búið er
að bæta rjóma og osti út í sós-
una.
Induerskur
matur
Veljið tandoori
eða tikka fisk,
kjúkling eða
lambakjöt, en
forðist rjómalag-
aðar tikka masala
sósur. Tandoori
réttir eru bakaðir
í leirofni og án
sósu svo þeir eru
góðir fyrir þá sem
ekki vilja inn-
byrða allt of
margar hitaein-
ingar. Þessir réttir
innhalda yfirleitt
ekki fleiri en 200
hitaeiningar. Ef fólki finnst rétt-
irnir of þurrir er rétt að fá sér
grænmeti í karríi og sleppa olí-
unni sem oftast er borin fram sér.
Raitha jógúrt sósan indverska
inniheldur fáar hitaeiningar og
auðvitað skaðar engan að fá sér
soðin hrísgrjón. Indverska
brauðið er misfitandi. Chapatis,
flatbrauð grillað án feiti, er því
gott, en parathas, ósýrt flatbrauð,
er dýft í feiti og þá fjölgar hitaein-
ingunum. Naanbrauð er stund-
um penslað með skírðu smjöri
sem heldur er ekki nógu gott.
Kínverskur matur
Betra er að panta sér chop-
suey núðlur en sætt og súrt svína-
kjöt því það síðarnefnda er djúp-
steikt og í deighjúp. Hrísgrjón-
in, ómenguð, eru góð en þegar
búið er að blanda einhverju út í
þau og steikja þau fer hitaeining-
unum að fjölga. Sé kjötið, fisk-
urinn eða grænmetið, sem notað
er í réttina, þurrsteikt á pönnu
er ástæðulaust að óttast það en
á ódýrum kínverskum veitinga-
stöðum notast menn því miður
oft við ódýrt hráefni, t.d. feitt kjöt
sem falið er í þykkri sósu. Þrátt
fyrir allt er oftast einhver olía
höfð með í þurrsteiktum réttum,
en venjulegur skammtur af
nautakjöti í ostrusósu er þó að-
eins talinn innihalda um 350 hita-
einingar. Mikið er af chili, hvít-
lauk og öðru kryddi í kínverskum
mat og það ætti að nægja til þess
að gera matinn girnilegan án þess
að út í hann sé bætt of miklu feit-
meti.
Skyndibiti
Morgunmatur
Beiglur hafa fengist um nokk-
urt skeið hér á landi. Sé beiglan
ein og sér má reikna með að hún
innihaldi um 200 hitaeiningar.
Svo má líka grípa morgunkorn í
smápakka og hafa með því létt-
mjólk.
Hádegismatur
Samlokur verða oft fyrir valinu
en látum nú ekki blekkjast. Þótt
aðeins séu tómatar og agúrkur á
samlokunni og svolítið kál getur
hún orðið hættuleg því venjulega
hefur sósu verið bætt á til að
bragðbæta hana. Samloka getur
innihaldið um 900 hitaeiningar ef
hún er með einhverju „góðu“.
Það mætti allt eins fá sér djúp-
steiktan fisk og kartöflur. Hita-
einingafjöldinn yrði svipaður. Ef
fólk kaupir sér samloku þar sem
hægt er að velja meðlætið er rétt
að halda sig við grænmetið og
sleppa öllu sem er fituríkt.
Kvöldmatur
Sem dæmi um allgóðan
skyndibita að kvöldlagi er pítu-
brauð með kjúklingi. Það má
bæta réttinn með fersku græn-
meti en rétt er að minna enn einu
sinni á að það ber að sleppa sós-
unni ef vel á að vera. Hamborg-
ari með engu nema brauðinu þarf
heldur ekki að vera sem verstur
og inniheldur trúlega ekki nema
250 til 300 hitaeiningar sé hann
ekki búinn til úr allt of feitu kjöti.
Vikan
31