Vikan


Vikan - 19.09.2000, Síða 56

Vikan - 19.09.2000, Síða 56
Frönsk sveitasæla Mörg þorpin eru uppi í fjöllunum og eru byggð upp eftir hlíðunum. Margir hafa gaman af að skiou- leggia sumarleyfisferðir sínar sjálfir og vilja ógjarnan fara í hópferðir ferðaskrifstofa. En heg- ar fólk ferðast á eigin uegum er hið óvænta iðulega á næsta leiti og há er ekki á neinn að treysta nema sjálfan sig huí enginn annar fararstjóri er með í för. Þetta fengum við fjölskyitfan að reyna í sumarleyfinu í hjarta franskrar sueitasælu í Prouence héraði. rcs tz CD CO CD O) cr CD co Við fórum ekki undir- búningslaust að heiman heldur var búið að panta sumar- hús í smáþorpi í nágrenni við Avignon. Lest fór frá Charles de Gaulle flugvelli til borgarinnar og við áttum einnig pantað far með henni. Allt gekk vel og við lentum tímanlega í París en þá hófust vandræðin. Þar sem við ferðafélagarnir stóðum og vorum að leita að brautarstöðinni vék sér að okkur maður og spurði hvort hann gæti aðstoðað. Hann var með stóran farsíma tengdan við tösku sem hékk um öxl hans og við ályktuðum að þarna væri á ferð starfsmaður flugvallarins. Jú, víst gátum við þegið aðstoð og þegar við höfðum sagt hon- um hvert við værum að fara kvað hann upp með það að við þyrft- 56 Vikan um að komast á Gare de Lyon. Við sögðum honum að það væri ekki alls kostar rétt því lestin færi frá flugvellinum en hann stóð fast á sínu. Þar sem við erum ókunnug í Frakklandi og tölum ekki málið varð það ofan á að við ákváðum að treysta þessum nýja vini okk- ar. Hann bauðst til að keyra okk- ur á lestarstöðina gegn vægri greiðslu (sem reyndist tæpar 5000 kr.) og við gengumst inn á það. Á Gare de Lyon kom hins vegar fljótt í ljós að lestin okkar færi frá flugvellinum og okkur var bent á að taka rútu þangað aftur. Rútuferðin gekk hægt, enda umferðin farin að þyngjast í París. Tíminn leið hratt og brott- farartími lestarinnar nálgaðist stöðugt og enn var ekki farið að grilla í flugstöðvarbygginguna. Kraftaverk að finna rétta brautarpallinn Ferðalangarnir frá íslandi voru orðnir órólegir og kvíðnir því enn átti eftir að finna lestar- stöðina á flugvellinum. Þegar rút- an loks nam staðar á fyrsta við- komustað í flugstöðvarbygging- unni hlupum við af stað með far- angurinn í eftirdragi í leit að ein- hverjum sem gæti hjálpað. Fyrir tilviljun komum við auga á skilti sem benti á brautarstöðina og nú fengu postulahestarnir þjálfun eftir langvarandi hvíld. Það stóð á endum að við komumst niður á brautarpallinn tveimur mínút- um áður en lestin átti að fara. Sú tilviljun að við skyldum einmitt hitta á brautarpallinn þar sem lestin okkar stoppaði verður að teljast nánast kraftaverk ef tek- ið er tillit til þess að flugstöðvar- byggingin er stór og þar er auð- velt að villast. Við komum okkur fyrir í lest- inni en þá tók ekki betra við. I Ijós kom að við vorum í röngum hluta lestarinnar. Lestin er í raun tvær samtengdar lestir sem eru aðskildar hvor frá annarri þegar vissum áfanga ferðarinnar er náð og fara þá sitt í hvora áttina. Til að leiðrétta þessi mistök urðum við að hírast í þröngu hólfi milli lestarvagnanna, stökkva út á næstu brautarstöð og hlaupa eins og við ættum lífið að leysa með- fram lestinni þar til rétti vagninn var fundinn. Eftir á að hyggja hefur það sennilega verið hálf- furðuleg hersing sem ruddist út úr vagninum og hljóp af stað með fjórar þungar töskur í eftirdragi. Smávaxnar franskar konur hlupu úr vegi þessara vígalegu Islend- inga og hafa sjálfsagt margar talið sig eiga snarræði sínu lífið að launa. Allt tókst þetta og við komumst heilu og höldnu til Avignon. Við ætluðum að leigja þar bíl og keyra upp í þorpið þar sem húsið okkar var en hafði láðst að taka það með í reikning- inn að Avignon er menningar- borg 2000, eins og Reykjavfk, og því stútfull af ferðamönnum. Engan bíl var að fá en þegar við höfðum samband við leigusala okkar til að fá lykla af húsinu bauðst hann til að keyra okkur upp að dyrum. Við þáðum með þökkum þetta góða boð sem var einkennandi fyrir þá hlýju og hjálpsemi sem við mættum hvar- vetna meðal Provence búa. Húsið sem tekið var á leigu í þorpinu Murs.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.