Vikan - 14.11.2000, Blaðsíða 64
»
fyvx þ* béK* fyr>r 20, janéÍAy-
Þeir sem bóka ferðina frd
mdnudegi til fimmtudags fyrir
20. janúar, geta tryggt sér
8.000 kr. afslátt á mann.
ófrtilegt veré
og nutet.
Skattarkr. 2.820, ekki innifaldir.
Borg hinna þúsund turna, gimsteinn Evrópu, borg
töfranna, gullna borgin. Það er engin tilviljun að Prag
hefur verið nefnd öllum þessum nöfnum, borgin er
einstök og á engan sinn líka í Evrópu. Borgin var stærsta
og ríkasta borg Evrópu á 14. og 15. öld, menningarhjarta
Evrópu, og hún er ótrúlegur minnisvarði um stórkostlega byggingarlist
og menningu. Hér frumflutti Mozart Don Giovanni óperuna, hér hélt
Beethoven reglulega tónleika, hér sátu Kafka og Einstein við skriftir og
Mahler við tónsmíðar. Tékkar hafa notað tímann vel undanfarin ár og til
borgarinnar streyma nú yfir 7 milljónir ferðamanna á hverju ári enda er
hún tvímælalaust ein fegursta borg heimsins. Hradcany kastalinn gnæfir
yfir borgina, hið gamla stjórnarsetur konunga allt frá níundu öld og nú
www.heimsferdir.is
íiw
aðsetur forsetaskrifstofu Havels. Gamla bæjartorgið, tunglklukkan,
Karlsbrúin, Wenceslas torgið, allt eru þetta ógleymanlegir borgarhlutar.
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að kynnast þessari ótrúlegu
borg. I boði eru góð 3. og 4. stjörnu hótel og spennandi kynnisferðir um
kastalann og gamla bæinn þar sem þú kynnist ótrúlega heillandi mannlífi
á milli þess sem þú eltir óendanlega rangala gamla bæjarins með
íslenskum fararstjórum Heimsferða.
Heimsferðir
Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • www.heimsterdir.is