Vikan


Vikan - 14.11.2000, Blaðsíða 8

Vikan - 14.11.2000, Blaðsíða 8
ég gæti gert. Ef einhver hefði sagt mér fyrir ári síðan að ég mundi standa í þessum sporum hefði ég hlegið mig máttlausa. En samt er þetta alls ekki fjarri lagi því ég er baráttumanneskja sem berst alltaf til þrautar." Vestfirskur baráttujaxl Eins og áður sagði er Guðný alin upp á Vestfjörðum og stundum hefur heyrst að Vest- firðingar séu harðir af sér og miklir baráttujaxlar. Telur Guð- ny að þetta se rett mat? „Ég er ekki frá því að svo sé. Lífsbaráttan er hörð fyrir vestan og fólk gefst ekki upp þótt því mistakist heldur rís upp og reynir aftur. Égfórungaðvinna í frystihúsi og það er erfitt. Fólk úti á landi verður einnig að kosta meiru til vilji það styrkja börn sín til náms og það gefur auga leið að séu börnin mörg tekst það ekki nema þau hjálpi til og vinni með skólanum á sumrin. Sjálf var ég í heima- vist Menntaskólans á (safirði og heimavistarskólar eru dýrir. Ég vann því í öllum fríum. Þegar haldið var heim í jólafrí lenti flugvélin að morgni til og venju- lega var ég komin niður í frysti- húsaðvinnaeftirhádegi. Égvar ekki að telja þetta eftir mér. Val- ið stóð um þetta eða að hætta námi og fara að vinna fyrir mér og ég valdi fyrri kostinn. Mað- ur þarf frekar að læra að bjarga sér ungur á minni stöðum úti á landi en í borginni þar sem öll þjónusta er við höndina. Það herðir mann og maður þarf ekki eins mikinn stuðning frá öðr- um eins og marg- ir sem þurfa minna fyrir hlut- unum að hafa.“ Engu að síður hlýtur þaðað vera þó nokkuð stórt stökk fyrir ein- stæða móður að stofna jafnnýstár- legt fyrirtæki og raun ber vitni og vita í raun ekki hvort dæmið muni ganga upp eða ekki? „Auðvitað þarf áræði til en hvers vegna að draga alltaf úr sjálfum sér þegar maður fær góðar hug- myndir? Af hverju ekki frekarað láta á hugmyndina reyna og gefa sjálfum sér tæki- færi til að láta hana ganga upp? (slenskar konur skortir, að mér finnst, í sjálfu sér ekki sjálfs- öryggi en þeim hættirtil að van- meta sjálfar sig. Við getum miklu meira en við gerum okk- ur grein fyrir. ( mínu starfi hjá SAS vann ég til að mynda mjög sjálfstætt og er því vön að vinna hratt. Ég hef orðið mikla og góða starfs- reynslu og hef oft þurft að taka mikilvægar ákvarðanir á staðn- um án þess að hugsa mig um eða leita ráða hjá yfirmanni áður. Éghef einnigfengið marg- ar hugmyndir og hrundið þeim í framkvæmd og fylgt þeim eft- ir og uppskorið árangur sem fór fram úr mínum björtustu von- um. Égtel migverafyrstaflokks sölumann og til marks um það má nefna að ég hef iðulega ver- ið að selja drauma og þeir eru alls ekki sú söluvara sem auð- veldast er að koma út. Samt hefur mér fundist að á vinnu- markaði sé ekki tekið nægilegt tillit til þessa vegna þess að ég hef ekki háskólapróf. Margir leggja að mínu mati of mikið upp úr háskólamenntun sem er góð en segir alls ekki allt." Konur meiri fullhomnun- arsinnar „Við konur erum auk þess mun meiri fullkomnunarsinnar en karlmenn. Við sækjum til að mynda ekki um starf án þess að vera þess fullvissar að við völdum því. Karlmenn eru til- búnari til að láta reyna á aðlög- unarhæfni sína og hæfileika til að læra eitthvað nýtt. Þeir telja það ekki, ólíkt okkur, upphaf og endi alls verði þeim eitthvað á í byrjun. Þeir kunna einnig betur að koma sjálfum sér á framfæri. í atvinnuviðtölum eru konur yfirleitt varkárar og slá í og úr. Segjast geta ýmislegt en þær fara varlega í að fullyrða of mikið eða hrósa sjálfum sér. Karlmenn tala af mun meira ör- yggi og tíunda mun frekar eig- in hæfileika og hæfni. Sömuleiðis er mikill munur á því hvernig karlmenn og kon- ur fara að því að stofna fyrir- tæki. Grunnur míns fyrirtækis er til að mynda farsími og tölva sem helst ætti heima á Árbæj- arsafni. Ég fékk aðstoð frænda míns, Ólafs Inga Brandssonar, við að útfæra vefsíðu fyrirtækis- ins og vinur minn Guðjón Dav- íð Jónsson, auglýsingateiknari, hannaði svo „lógóið". Ég vissi nokkurn veginn hvernig ég vildi hafa þetta en þeir hjálpuðu mér að útfæra grunnhugmyndir mínar. Ég kann ekki að setja upp vefsíðu en langar að læra meira um slíka hluti og hef um þessar mundir mjög mikinn áhuga á markaðsmálum og vildi gjarnan fara að vinna meira á því sviði. Mig langar jafnvel að fara í eitthvað nám því tengt en ég vil ekki fara í langt háskóla- nám. Mér leiðist að sitja í tím- um og á það til að sofna svo ég kýs frekar að fara í nám sem tekur styttri tíma, enda tel ég það allsekki skila minni árangri f mörgum tilfellum. Námskeið- in held ég svo í húsnæði sem frændi minn og kona hans reka í heildsölu. Þau hafa verið svo yndisleg að hliðra til og leyfa mér að komast þarna inn með mín námskeið á kvöldin. Yfir- byggingin fyrirtækisins er því lítil og hættan á stórtapi ekki mikil. Karlmaður í sömu sporum og ég hefði sennilega byrjað á því að leigja stórt húsnæði og kaupa þann tölvu- og tæknibúnað að ég tali nú ekki um öll verkfær- in sem hann hefði talið sig þurfa. Hvort hans fyrirtæki hefði meiri möguleika á að ganga get ég ekki dæmt um. Ég ákvað þó að reyna og sjá hversu langt ég kæmist með þessa hugmynd mína. Það var mitt val og ef það gengur ekki þá verður bara að hafa það. Ég mun í það minnsta vera reynslunni ríkari að þess- ari tilraun lokinni." Þrátt fyrir varnaglana sem Guðný slær er augljóst að hún er bjartsýn og hefur mikla trú á uppátæki sínu. Hún segist aldrei hafa snert á hamri eða sög áður en hún stofnaði þetta fyrirtæki en núna fari hún varla í járnvöruverslun án þess að sjá heilmikið af verkfærum sem hana dauðlangi að eignast. „Ég hafði aldrei unnið nein störf lík þessum áður en ég fór að sækja eigin námskeið. Ég hafði málað og taldi mig bara hafa þó nokkuð vit á því verki en samt var svo margt sem ég lærði og ótal margt sem opnaðist fyr- ir mérá námskeiðinu um máln- ingu sem ég hafði aldrei leitt hugann að áður. Eins og ég sagði áðan finnst mér eins og nýrogspennandi heim- ur sé að opnast mér.“ 8 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.