Vikan


Vikan - 14.11.2000, Blaðsíða 58

Vikan - 14.11.2000, Blaðsíða 58
J J o ÉG EIGNAÐIST BARN A stríðsárunum var stúlkum sem fóru í MEÐ HERMANNI ástandið oft líkt við síldartunnu sem hefði laskast á botninum. Við vorum kallaðar „lagbrotnar". Núna er ég á áttræðis aldri, flutt hingað til Reykja- víkur úr minni heima- sveit og búin að kaupa mér litla og notalega íbúð. Ég geng oft Laugaveginn Þar sem ég hitti her- manninn minn fyrst. Þó að margt sé breytt síðan þá, finn ég anda hans fylgja mér á þessum slóðum. egar ég var átján ára fór ég í vist hjá frænku minni í Reykjavík. Mig langaði ekkert að fara, en heima var meira en nóg af vinnukrafti, við systkinin vorum níu. Það þótti sjálfsagt að fara að vinna fyrir sér um leið og það var hægt. I dag hefði það kallast barnaþrælkun. Við átt- um heima á bóndabæ rétt utan við þorpið. Þorpsbúar lifðu á fiskveiðum og smábúskap. Ég man vel eftir kindakofum og fjósum á túnblettunum við litlu húsin þeirra. Það var litið upp til fólks sem vann við kaupfé- lagið eða hjá kaupmanninum því það var betur klætt en við hin sem unnum sveitavinnu eða vorum við fiskvinnu. Þá var líf- ið vinna og lítið annað. Allt sem fréttnæmt þótti vakti mikið um- tal og ég tel að sögur um stúlk- urnar sem fóru í ástandið hafi skemmt mörgum á þessum við- burðasnauða stað. Ég man ekki eftir fátækt heima en það var farið vel með alla hluti. Yngri krakkarnir gengu í fötum af þeim eldri, en fyrir jólin fengu allir ný föt. Seint í ágúst sumarið sem ég var átján ára, birtist systir pabba ogvildi fá mig í vist hjásér. Hún sagði að ég fengi að læra að sauma á meðan ég væri hjá sér. Égfór með henni til Reykjavík- ur og fékk rúmgott herbergi í ris- inu í stóra, fína húsinu henn- ar. Fyrstu dagana leiddist mér mjög mikið og langaði heim aft- ur en þegar ég fór að sækja tíma í kvenfatasaum minnkaði heim- þráin og ég gleymdi mér við námið. Þetta var á þeim tímum þeg- ar amerískir hermenn voru fleiri á götunum en fslendingar. Margar stúlkur gáfu þeim hýrt auga en frænka mín varaði mig við þeim og sjálf var ég stað- ráðin í því að skipta mér aldrei af hermanni. UNGIHERMAÐURINN Á LAUGAVEGINUM Leiðin í saumakennsluna lá um Laugaveginn. Fljótlega tók ég eftir hermanni sem oft stóð í skjóli í skoti framan við inn- göngudyr á klæðaverslun sem þá var neðarlega á Laugavegi. Þessi verslun er nú fyrir löngu hætt. Ég gat ekki varist því að taka eftir því hvað hann var glæsilegur. Hann var svo ólíkur strákunum heima. (margarvik- ur gekk ég þarna um og oftast var hann á sama stað. Hann gaf sig ekkert að stelpunum sem reyndu að tala við hann, ólíkt því sem mér sýndist um flesta aðra hermenn. Á saumastof- unni sem ég lærði á var mikið talað um dátana og sumar stúlkurnar voru í ástandinu og þótti ekki skömm að. Þær slettu ensku þegar þær töluðu saman og nokkrar þeirra voru að læra málið. Ég fékk mikla löngun til þess að læra ensku og með leyfi frænku minnar sótti ég nokkra einkatíma í málinu. Þaðvareins með enskukennsluna og saumaskapinn að hvort tveggja var kennt í húsnæði við Lauga- veginn. BROSIO VARÐ AO ELDHEITRI ÁST Égstóðmigaðþví, þvertgegn vilja mínum, að litast um eftir unga hermanninum í hvert skipti sem ég fór fram hjá þar sem hann var vanur að vera og verða fyrir vonbrigðum ef hann var þarekki. Stundum mætti ég honum þegar ég var send í búð- ir. Eftir nokkrar vikur var hann farinn að kinka kolli til mín og brosa. (fyrsta skiptið tók hjart- að kipp, ég brosti á móti og eng- ar viðvörunarbjöllur klingdu. Á eftir hugsaði ég að það gæti varla verið saknæmt að brosa á móti. En brosin okkar urðu að eldheitri ást sem aldrei hefur slokknað. Hann var ekki á vanalega staðnum í nokkur skipti á eftir þegar ég gekk fram hjá. Ég varð vonsvikin og mér datt í hug að hann væri farinn á vígstöðvarn- ar. Þessi hugsunolli méróþæg- indum. Ég óttaðist að hann hefði hitt einhverja stelpu sem honum litist vel á. En einn daginn, þegar ég var að fara í búðir í Austurstræti, var klappað á öxlina á mér. Þarna var hann kominn og vildi bjóða mér í bíó á næsta laugardags- kvöld. Þetta fyrsta samtal okk- ar gekk ekki greiðlega fyrir sig en þó skildi ég að hann ætlaði að bíða mín í skotinu sínu klukkan sjö. Þetta gekk eftir. Við fórum í bíó en ég man ekki um hvað myndin snerist því ég var með allan hugann við hermann- inn minn. Þegar hér var komið sögu byrjaði ég að skrökva að frænku. Ég sagði henni að ég væri að fara í bíó með stelpum að heim- an. Hún tók það gott og gilt. Við héldumst í hendur alla myndina út í gegn og á eftir gengum við um bæinn hönd í hönd á mildu nóvemberkvöld- inu. Upp frá þessu hittumst við eins oft og nokkur kostur var. Á afmælisdaginn minn í byrj- un apríl dró hann upp trúlof- unarhringa sem við settum upp samakvöld. Þávarbúiðað kom- ast upp um mig enda var ég hætt að leyna sambandi okkar. Fjölskyldan var fúl, frænka var æf, en það sljákkaði fljótlega í henni þegar hún kynntist hon- 58 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.