Vikan


Vikan - 14.11.2000, Blaðsíða 4

Vikan - 14.11.2000, Blaðsíða 4
Kæri lesandi Forsiða: Forsíðufyrirsæta: Arndis Jónasdóttir Föröun: Margrét R. Jónas Ljósmyndun: Gunnar Gunnarsson Flár: Begga, hárgreiðslustofunni Bylgjan Fatnaður og taska: Donna Karan i Kringlunni Naglalakk: Nicolo Hárvörur: Dávines Gullin morgunstund ^^">rfkammdegis- rökkrið um- vefur okkur nú myrkum örmum sínum og tekur fólk þvi faðmlagi mis- jafnlega vel. Yfir vetr- artímann er okkur tíð- rætt um svokallað skammdegisþunglyndi sem herjar á marga landsmenn enda kannski ekki skrýtið að fólk verði þungt á geði þegar lítillar dagsbirtu gætir. Ég hef hins vegar með árunum lært þá kúnst að snúa á skammdeg- isdrauginn og nú kveð ég hann niður með vænum skammti af óhóflegri bjartsýni og slatta af veruleikafirr- ingu. Ég ætla nú að deila með ykkur þess- ari aðferð minni sem hefur reynst mér ákaf- lega vel. ( byrjun september, þegar morgunmyrkrið sækir sig í veðrið, stilli ég vekjaraklukkuna mina klukkutíma fyrr en ella og fer á fætur klukkan sex. Vinir og vandamenn skilja ekk- ert í þessari skyndi- legu morgungleði sem ég fyllist af á veturna. En þetta eru bestu stundir dagsins hjá mér. Áður en ég fer að sofa á kvöldin hef ég kaffivélina tilbúna svo þegar ég skríð fram úr i myrkrinu þá er mitt fyrsta morgunverk að kveikja á vélinni og innan skamms ilmar allt heimilið af dásam- legri kaffiangan. Þetta er allt mjög vel skipu- lagt, skiljið þið. Meðan á uppáhellingu stend- ur skelli ég mér í hressandi sturtu, fer í þægileg föt og nýt þess siðan að fá mér fyrsta kaffibolla dags- ins. Hann er alltaf bestur og ef þessi góða stemmning á að nást fullkomlega, þá er nauðsynlegt að kaff- ið sé sterkt. Síðan kveiki ég á fullt af kertaljósum og hreiðra um mig í stofunni. Þögnin og friðurinn sem ríkir á þessum tíma dags er alveg ein- stakur. Síminn sefur enn værum svefni og það er öruggt mál að enginn bankar upp á fyrir allar aldir. Oftar en ekki sest ég með kaffið mitt við tölvuna og sinni þar ýmsum verkefnum. Það er engu líkara en tölvan mali notalega þegar ég leik af fingrum fram á lyklaborðinu, þessi árrisuli og náni vinnu- félagi minn. Ég kveiki á sjónvarp- inu klukkan sjö og nýt þess að horfa á ísland í býtið, drekka í mig nýjustu fréttir, veður- upplýsingar og hlusta á notalegt og fræðandi spjall þáttastjórnanda og gesta þeirra. Með þessu móti kemst ég í snertingu við umheim- inn áður en vinnudag- urinn hefst. Hollur morgunverður við kertaljós setur svo tóninn fyrir daginn. Um það leiti rumskar barnið og hundurinn og verða þeir félagar báðir jafnglaðir yfir að hitta húsmóðurina svo hressa fyrir á hverjum morgni. Með þessu skipulagi og kertaljós- um sem gefa heimil- inu notalegan blæ komast þeir sam- stundis í gott skap og njóta upphafs morg- unsins ekki síður en ég. Og allir eru ánægð- ir. Ég hef fundið töfra- lausnina gegn morg- unsleni og stressi. Það er að vakna fyrr og gefa sér góðan tíma með sjálfum sér. Það kemur ekki einungis jafnvægi á mitt eigið líf heldur skilar sér áfram til annarra heimilismeðlima og ég bý að þessari gullnu morgunstund allan daginn. Stöldrum við og njót- um einfaldleika lífs- ins. Hrund Hauksdóttir, ritstjóri Ritstjórar: Jóhanna G. l-laröardóttir oy Hrimd Hauksdóttir, vikanWfrodi.is. Útgetandi: Fróði hl. Seljavegi 2, simi: S15 5500 lax: 515 5599. Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson. Aðalritstjóri: Steinar J. L.úöviksson, sinii: 515 5515. Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdótlir, sími: 515 5512. Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Gunnhildur Lily Magnúsdóttir, Guðríður Haraldsdóttir og Margrét V. Helgadóttir. Auglýsingastjórar: Ingunn B. Sigurjónsdóttir og Sigriður Sigurjónsdóttir vikanaugl@frodi.is. Grafiskur hönnuður: Guðmundur Ragnar Steingrimsson. Verö i lausasölu J59 kr. Verð í áskrift ef greitt er með greiöslukorti 'MA kr. á einluk. Ef greitt er með gíróseðli 390 kr. á eintak. Litgreining og myndvinnsla: Fróði lif. Unnið i Prentsmlðjunni Odda hf. Öll réttindl áskilin varðandi elni og myndir. Askriftarsími: 515 5555 4 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.