Vikan - 14.11.2000, Blaðsíða 54
Það er næstum vonlaust að
hitta nokkurn, sem hefur
heimsótt höfuðborg Tékk-
lands, Prag, sem ekki heill-
ast af borginni. Prag er eins
og eitt stórt listasafn þar
sem hver byggingin er
annarri fallegri. Þótt aðeins
séu liðin ellefu árfrá
flauelsbyltingunni og ferða-
menn nokkuð nýtt fyrirbæri í
augum Pragbúa reyna þeir
sitt besta til að standa sig.
Hús, sem varla sást í fyrir
sóti fyrir nokkrum árum,
hafa verið gerð upp í sinni
upprunalegu mynd og mál-
uð í pastellitum.
að er ekki undarlegt
þótt íslendingar nán-
ast gangi af göflunum
þegar þeir sjá verðlag-
ið á kristal í borginni. Enginn
verður þó hissa því Tékkland er
land kristalsins og þess vegna
kostar hann nánast ekki neitt í
okkar augum!
Prag er ekki borg sem ætti
aðflokkastsem „verslunarborg-
in Prag", þótt þar sé vissulega
hægt að gera góð kaup. Það er
ekki aðeins kristallinn sem er
ódýr í borginni, heldur er líka
hægt að fá gull á góðu verði,
postulín, skó og veski og úrval-
ið í fatnaði er sífellt að aukast.
í miðborg Prag er ein lítil
Kringla sem heitir Kotva. Versl-
unin er á fimm hæðum og þar
fæst nánast allur varningur sem
hugurinn girnist. Gatan Ná
Príkopé er sérstaklega góð versl-
unargata þar sem er að finna
verslanir eins og Mark's &
Spencer og Vero Moda, en sú
síðarnefnda er í eigu (slending-
anna Brfetar og Egils Þórisson-
ar. Einn þekktasti skóframleið-
andi Tékka hét Bat'a og er hann
nánast goðsögn I heimabæ sín-
um, Zlín á Mæri. Bat'a þessi
átti mikil oggóð viðskipti við ís-
land og verksmiðja hans fram-
leiddi m.a. peysufataskóna sem
seldir voru í Skóverslun Reykja-
víkur fyrr á öldinni. Stórversl-
un, sem ber nafn hans, er neðst
á hinu þekkta torgi, Václavské
Námestí, eða Wenseslas Squ-
are, og þar er hægt að finna skó
af öllum hugsanlegum stærðum
og gerðum.
Krlstall!
Kristalsbúðir eru nánast á
hverju götuhorni. Gott er að
versla í Celetná Crystal ogTom's
Bohemia, sem báðarstanda við
eina elstu götu Prag, Celetná,
sem liggur upp frá Gamla torg-
inu. Við þá götu eru líka marg-
ir góðir veitingastaðir, en ekki
allir á augljósum stað. Hafið
augun vel opin því oft þarf að
fara inn um hlið, inn í garða og
ganga svo niður í djúpa kjallara.
Einn slíkur heitir U Pavouka -
eða Hjá kóngulónni, góður og
skemmtilegur veitingastaður.
Það er ekki hægt að koma til
Prag nema gefa sér tlma til að
setjast niður við eitthvert veit-
ingahúsanna á Gamla torginu
ogfylgjast með mannlífinu. Þar
er líka hægt að sjá hina merki-
legu listasmíð, „Stjarnfræði-
legu klukkuna", eða „Klukkuna
hans Hanusar" eins og Tékkar
kalla hana gjarnan. Þessi
klukka varsett upp í byrjun 15.
aldar, en klukkusmiðnum Han-
us var falið að endurgera hana
árið 1490. Klukkan sýnirekki
aðeinstímann einsog við þekkj-
um hann, heldur líka gamla bæ-
heimska tímann og afstöðu
himintunglanna til stjörnu-
merkjanna tólf og saga hennar
er vel þess virði að kynna sér
áður en staðnæmst er fyrir fram-
an klukkuna á heila tímanum.
Þá safnast múgur og marg-
menni á Gamla torginu og eins
gott að vera vel á verði því inn-
an um eru
alltaf þraut-
þjálfaðir vasa-
þjófar sem
nýta tímann
vel meðan
ferðamenn
beina athygl-
inni annað!
Annars er
Prag ekki borg
sem ferða-
menn þurfa að
vera hræddir í.
Vasaþjófnaðir eru eins og ger-
ist og gengur í öðrum stórborg-
um, en það hefurenn ekki gerst
í borginni að ráðist sé á fólk með
barsmíðum eða vopnum. Glæp-
ir eru tiltölulega fátíðir og eit-
urlyfjaneytendur halda sig eink-
um í einum skemmtigarði en
blanda ekki geði við fólk á göt-
unni. Varist aðskipta peningum
úti á götu. Farið í banka eða
skiptið erlendri mynt í „banko-
mat" vélum eða takið út af
kreditkortinu í slíkum vélum,
sem eru um allt.
Það er margt að sjá í Prag og
endalaust hægt að rölta um litl-
ar, hellulagðargöturnarog upp-
lifa eitthvað nýtt. Suma staði
er þó nánast skylda að heim-
sækja, eins og torgið Václavské
Námestí, Wencelas Square,
sem skriðdrekarnir óku inn á í
innrásinni '68 þegar Vorið í
Prag var brotið á bak aftur. Það
var líka við þetta torg sem þús-
undir söfnuðust saman með
nellikur og logandi kertaljós í
flauelsbyltingunni 17. nóvem-
ber 1989. Við enda torgsins
stendur Þjóðminjasafnið og við
það ofanvert er minnisvarði um
Jan Palach, stúdentinn sem
kveikti í sér í ársbyrjun 1969
til að mótmæla kommúnisman-
umílandinu. Tékkarfaragjarn-
an með blóm að minnisvarða
hans eða kveikja á kerti og setja
við myndina af honum.
Inn af Václavské Námestí er
gata sem heitir Vodicova. Næst-
um við enda hennar er afar
skemmtilegur matsölustaður,
sá fyrsti í Prag sem bruggaði
sinn eigin bjór. Staðurinn heit-
ir Novomistský Pivovar og þar
má fá einn lítra af bjór fyrir eitt
hundrað íslenskar krónurogalla
hugsanlega tékkneska rétti á
lágu verði. Harmonikuleikari
lyftir upp stemmningunni og
54
Vikan