Vikan - 19.12.2000, Síða 18
Texti: Helga Agnars Jónsdóttir
/ H elga Agnars Jónsdóttir:
Húsið er mikil ævintýra-
höll. Framan við eldhúsið
er verönd þar sem borðað
er þegar vel viðrar.
I vetur síðastliðin rakst ég
á grein í norska Hjemmet,
sem vakti forvitni mína.
Það var grein um kokka-
skóla í Suður-Frakklandi.
Ég sendi fax út og óskaði
eftir nánari upplýsingum,
og fékk svar um hæl. Síð-
an leiddi hvað af öðru og
að lokum endaði ég sem
nemandi á vikunámskeiði
í La cuisine du jardin.
Kokkaskólinn La
cuisine du jardin er
rekinn af Birthe
Sandager og Árne
Fusager. Þau eru gamalreynd
í veitingarekstri, meðal annars
ráku þau veitingastaðinn
Gammel Aabyhoj í Árósum í
mörg ár. Þau hafa einnig gefið
út matreiðslubækur t.d. „Vor-
es kokken í Provence" og starfa
við innflutningáýmissi matvöru
frá Frakklandi til Danmerkur.
Árið 1989 seldu þau Gammel
Áabyhoj og fluttu til Suður-
Frakklands. Þar hafa þau rek-
ið kokkaskóla síðan.
( skólanum eru haldin viku-
námskeið fyrir leikmenn og
lærða í franskri og ítalskri mat-
argerð, farið er gegnum nokkur
grunnatriði í matargerð, með-
ferð matvæla, uppbyggingu
matseðla og val á vínum. Árne
fer með nemendur í skoðunar-
ferðir á matvörumarkaði í ná-
grenninu, matseði11inn sam-
anstendur alltaf af fersku og
nýju hráefni: kjöti, fiski, græn-
meti og ávöxtum og að sjálf-
sögðu hinum frægu frönsku ost-
um og nýbökuðum brauðum.
Nemendur eru aldrei fleiri en
10-14 svo að hópurinn nær vel
saman. Nemendur eru að stór-
um hluta Danir, en einnig eru
Svíar og Norðmenn innan um.
Ég er fyrsti (slendingurinn sem
hefur tekið þátt í þessum nám-
skeiðum.
Námið fer fram á dönsku, en
Árne og Birthe eru vel fær í
ensku og frönsku. Námskeiðin
byggjast upp á því að hópurinn
eldar og borðar saman. Á
morgnana mæta þátttakendur
klukkan tíu og þá hefst undir-
búningur dagsins, eldaður há-
degismatur og borðað saman.
Eftir það er hlé og nemendur
geta farið í bæinn eða bara í
góða gönguferð um skóginn.
Um klukkan sex mæta allir aft-
ur og elda fína þriggja eða fjög-
urra rétta máltíð, síðan er sest
að veisluborði, etið, drukkið,
spjallað og hlegið til miðnættis.
Skólinn er staðsettur í litlu
fallegu fjal laþorpi, Tourettes sur
loup, um 14 km fjarlægð frá
ströndinni ogágóðum degi sést
út á Miðjarðarhafið. Þarna er
notalega heitt, þorpið er um
500 m yfir sjávarmáli, ég var
þar í byrjun september og þá var
hitinn um 24 °c yfir daginn.
Tourettes sur loup er miðalda-
þorp og ber þess glögg merki,
það er byggt á hæð og er raun-
ar bara bæjarkjarni umkringd-
urveggjum. Gamli bærinn ligg-
ur í skeifu og þar eru dæmigerð-
ar þröngar suður-evrópskar göt-
ur en út frá þeim eru hliðargöt-
urfullaraf listaverkaverslunum.
Flandverksmenn eru iðulega að
störfum í búðunum. Andrúms-
loftið er mjög hlýlegt og sér-
stakt, fólkið er alveg yndislegt,
hlýlegt og glaðvært og þótt að
18
Vikan