Vikan - 30.04.1969, Síða 32
/■--:
Husqvarna
HUSQVARNA eldavélin er
órnissandi í hverju nútíma
eldhúsi — þar fer saman
nýtízkulegt útlit og allt það
sen tækni nútímans getur
gert til þess að matargerðin
verði húsmcður'nni
ánægjuleg.
I’ 'SQVAF.NA eldavélar
fást fcæði sambyggðar og með
sérbyggðum bökunarofni.
Leiðarvísir á íslenzku ásamt fjölda mataruppskrifta
fylgir.
KIRKJA, PRESTAR
OG HJARTAÁS
Kæra Vika!
Ég þakka þér kærlega
fyrir allt það prýðisefni,
sem þú hefur boðið upp á
að undanförnu. Mitt
vandamál er það, að mig
dreymir svo óskaplega
mikið. Nú langar mig til
að biðja þig að ráða fyrir
mig einn af þessum ótelj-
andi draumum, sem mig
hefur dreymt. Hann er
svona:
Ég var háttuð ofan í rúm
með hvítum sængurverum.
Rúmið var staðsett í ka-
þólsku kirkjunni í Reykja-
vík. Mér fannst ég eiga að
sofa þarna, en var svo
hrædd, að ég gat ekki sofn-
að. Þess vegna tók ég að
horfa út undan sænginni.
Það var dimmt í kirkjunni,
en samt sá ég til. Allt í
einu sé ég marga presta
svartklædda koma inn
kirkjuna. Þeir eru þungir
á brúnina og virðast vera
að lesa biblíuna.
Eftir örskamma stund
kemur hópur af fólki fram
úr kirkjunni. Þetta er allt
ungt fólk, og það gengur
fram hjá mér, nema síðasti
maðurinn í hópnum (ég
þekki hann í sjón). Hann
nemur staðar spölkorn frá
rúminu og nefnir undrandi
nafn mitt.
Og þar með var draum-
urinn búinn! Hvað skyldi
þetta nú tákna?
Mig er alltaf að dreyma
þennan mann upp aftur og
aftur. Um daginn dreymdi
mig, að hann rétti mér
hjartaás.
Er þetta ekki furðulegt?
f guðs bænum birtið þið
þetta fyrir mig. Af skilj-
anlegum ástæðum vil ég
ekki gefa upp mitt rétta
nafn, en einu sinni var ég
kölluð uppnefninu
Glæsifjóla, 20 ára.
Þessi sérkennilegi
draumur táknar að öllum
líkindum alvarleg veikindi
einhvers nákomins ætt-
ingja þíns. Um tíma er
honum ekki hugað líf, en
þó rætist betur úr en horf-
ist í fyrstu. Að sofa í kirkju
getur táknað mannlát, en
ekki í þessu tilfelli, þar
sem þú sofnaðir aldrei. Að
dreyma prest einn eða
fleiri táknar annað tveggja
hjónaband eða að manni sé
trúað fyrir miklu leyndar-
máli .Við mundum gizka á,
að einmitt í sama mund og
þú átt um sárt að binda
vegna veikinda hins ná-
komna ættingja þíns kynn-
ist þú manni, sem þú gift-
ist fyrr eða síðar. Og fyrst
þig hefur dre.ymt þennan
umrædda mann, sem þú
þekkir í sjón, aftur og aft-
ur, — skyldi það þá ekki
vera hann? Hjartaásinn
boðar lán í ástamálum, svo
að þú ættir ekki að þurfa
að óttast að giftast þessum
,.HVENÆR Á ÉG
AÐ DEYJA?“
Kæri draumráðandi!
Mig langar til að biðja
þig að ráða fyrir mig einn
draum, sem mig dreymdi,
þegar ég var fjórtán ára
gömul, og er mér mjög
minnisstæður.
Hann er svona:
Mér fannst ég vera stödd
við vatn, sem er mjög stutt
frá æskuheimili mínu. Með
mér voru vinkonur mínar,
sem heita Ingibjörg og
Steinunn. Ég geri mér ekki
grein fyrir, hvað við vor-
um að gera, en allt í einu
verður mér litið upp. Þá
finnst mér sem ég sjái guð.
Hann situr í hvítum kyrtli
á lágum hól, sem er við
vatnið nokkra metra frá
okkur.
Vatnið er spegilslétt. Ég
sé, að sólin er að koma upp
við sjóndeildarhringinn.
Mér finnst allt vera svo
bjart, kyrrt og fagurt. Ég
hleyp frá vinkonum mín-
um til guðs, upp í fang
hans, legg hendurnar um
hálsinn á honum og spyr
hann:
— Hvenær á ég að
deyja?
Framhald á bls. 50
32 VIKAN 18- tbl-