Menntamál - 01.06.1943, Síða 41
MENNTAMÁL
31
skulu vera sex fastir kennarar auk skólastjóra og
aukakennarar eftir þörfum, og séu þeir ráðnir í sam-
ráði við fræðslumálastjóra.
11. gr. Fræðslumálastjórnin hefur á hendi yfirum-
sjón skólans og setur honum reglugerð. Kostnaður við
rekstur skólans greiðist úr rikissjóði.
12. gr. Með lögum þessum eru úr gildi numin lög
nr. 63, 22. nóv. 1907, um kennaraskóla í Reykjavík,
ennfremur 1. nr. 10, 4. júní 1924, um breytingu á þeim
lögum.
Greinargerð.
Frá því að kennaraskólinn var stofnaður, hafa tvær að-
albreytingar orðið á honum. Hin fyrri var gerð með laga-
breytingu árið 1924. Var þá tekin upp enskukennsla og
námstími lengdur um einn mánuð á vetri. Hin síðari fór
fram með reglugerðarbreytingu árið 1933. Voru þá inn-
tökuskilyrði þyngd að miklum mun og aukin kennsla í
uppeldisfræði, kennsluæfingum fjölgað og miklum tima
varið til æfinga í smábarnakennslu.
Síðan þessi breyting komst á, hefur enn verið aukið við
í ýmsum greinum, svo sem handavinnu, söngur gerður að
prófskyldugrein, og kröfur eru fram komnar um aukiö í-
þróttanám.
Af þessu leiðir, að nálega reyndist ókleyft að komast
yfir allt, sem til er ætlazt á þeim tíma, sem til námsins
er ætlaður, enda þótt nemendur séu svo störfum hlaönir,
að slíkt er ekki við hóf.
Til þess að bæta úr þessu hefur skólastjóri ásamt kenn-
urum skólans þegar fyrir þrem árum sent yfirstjórn skól-
ans erindi þess efnis, aö námstími skólans yrði lengdur
um einn vetur. Erindi þetta var ítrekað í fyrravetur, en
árangur hefur ekki orðið, enda telur ráðuneytið ekki rétt
að gera slíka breytingu án lagabreytinga.
Á undanförnum árum hafa margar raddir heyrst um
það, að nauðsyn sé að auka kennaramenntun í landinu.