Menntamál - 01.06.1943, Síða 45
MENNTAMÁL
35
að slíkt nám megi standa í héraðs- og gagnfræðaskólum.
Þyngja mætti innötkuskilyrði þessi með ákvæðum reglu-
gerðar, og æskilegt væri þá um leið að geta haft undir-
búningsnámsskeið í skólanum. Reynsla undanfarinna ára
hefur sýnt, að fólki veitist fullerfitt að fullnægja núver-
andi inntökuskilyrðum.
77. gr. breytir engu frá því, sem verið hefur og þarf
ekki skýringa viö.
8. - gr. Um inntöku stúdenta hefur verið reglugerðará-
kvæði og svo til ætlazt, að eins verði enn. Sama er að segja
um inntöku annarra utanskólamanna í aðra bekki en
fyrsta bekk.
9. gr. Hér er gert ráð fyrir, að Kennaraskólinn fái til
afnota fullkominn æfingaskóla svo fljótt, sem auðið er, og
ætti það að vera höfuðkrafa til umbóta frá því, sem nú
er. Nú eru aðeins tvær deildir eldri barna, og er það vitan-
lega alls kostar ófullnægjandi, en húsnæði skortir til þess,
að úr verði bætt. Hitt hefur bætt mikið um, að skólinn á
aðgang að einum stærsta smábarnaskóla hér í bæ og fara
þar fram æfingar daglega í byrjunarkennslu. Æskilegt
virðist vera, að samvinna gæti orðið milli kennaraskólans
og bæjarins, þannig, að kennai’askólinn tæki að sér kennsiu
ákveðins barnafjölda gegn framlagi frá bænum eftir sömu
reglum og gilda um laun fastra kennara við barnaskóla
bæjarins.
10. gr. Tala fastra kennara er hér miðuð við það, hve
margir kennarar eru nú á föstum launum við skólann, en
þeir eru fimm auk skólastjóra. Vitanlega verður kennara-
þörfin breytileg eftir því, hvað æfingaskóli starfar í mörg-
um deildum.
11. og 12. gr. þurfa engra skýringa við.
Frumvarp þetta var samþykkt sem lög frá Alþingi, 9. apr.
síðastl. meö eftirtöldum breytingum:
a) Á eftir „næman kvilla“ í 2. tölul. 5. gr. komi: „-----
3*