Menntamál - 01.04.1945, Side 12
90
MENNTAMÁL
helzt orðið að gagni. Slíkt er að sjálfsögðu nauðsynlegt
með stórþjóðum, þar sem verið er að búa nemendurna
undir líf og starf í margbrotnum þjóðfélögum. Raunar
má segja, að þetta sjónarmið sé og fyrir hendi hjá smá-
þjóðum, að minnsta kosti að vissu marki, þó að oft sé
það svo, að innan smærri þjóðfélaga sé verksvið hvers
og eins nokkru víðara en með stórþjóðum. Könnun hæfi-
leika og starfhæfni er þó alls staðar jafn mikið atriði.
Annars geta nemendur þessa skóla valið um eftirfar-
andi námsatriði: Alls konar náttúrufræði, jarðfræði og
landafræði. Verzlunarfræði, undirstöðu í hagfræði, vél-
ritun og meðferð fleiri verzlunarvéla. Alls konar listgrein-
ir, teiknun, myndlist og mótun. Hljóðfæraleik, söng og
söngfræði. Handavinnu alls konar, bæði fyrir pilta og
stúlkur, meðferð véla og undirstöðuatriði í vélsmíði. —
Auk þess er mikil áherzla lögð á íþróttir. Vissar skyldu-
námsgreinar eru fyrir nemendur í öllum námsflokkum,
svo sem viss stærðfræðikunnátta, móðurmál, saga þjóðar-
innar o. fl.
En jafnhliða náminu er mikið gert til þess að kenna
ungmennunum að nota vel frítíma sinn. Skólinn er svo í
sveit settur, að nokkur ástæða er til að gæta þessa sér-
staklega. Er að sjálfsögðu við ýmis vandamál að etja í
borgarhlutum, þar sem svo margt ólíkt fólk hefur saman
að sælda, — fólk, sem sumt hefur ekki ýkja háar siðgæðis-
hugmyndir eða mikla menntun. Til þess að vera sem bezt
á verði, hefur skólastjórinn komið því svo fyrir, að nem-
endur kjósa nefnd pilta, sem hefur það hlutverk með
höndum að fylgjast með útiveru nemenda á kvöldin og
gefa skýrslu um, ef þeir sjást á stöðum, sem ekki eru
taldir heppilegir unglingum. Þetta er eins konar skóla-
lögregla, og hefur hún gefizt vel. Hún vakir yfir því, að
nemendur komi jafnan vel og drengilega fram og aðhafist
ekki neitt óleyfilegt eða ósæmilegt. Brot eru dæmd af
sameiginlegum dómi kennara og nemenda.