Menntamál - 01.05.1946, Side 7
MENNTAMAL
77
hinna fyrri vetra, þar sem námið er ekki lengur bundið
tilliti til annarra skóla. — I lögunum er einnig gert ráð
fyrir tveggja ára gagnfræðaskólum í sveitum. Eiga þeir
að taka við nemendum, sem lokið hafa unglingaprófi.
Höfuðbreytingin á skipan menntaskólanna er sú, að
gagnfræðadeildirnar við þá leggjast niður, en þeir verða
samfelldir fjögurra ára skólar- Varðandi háskólann eru
engar breytingar í lögunum.
Nú hefir verið rakið aðalinntak hinna nýju laga. Hafa
þau að geyma þau ákvæði, ef lúta að heildarskipan skóla-
haldsins. Þau eru uppdráttur að hinum mikla skólameið,
þar sem sumir skólar eiga samastað í stofni, aðrir í grein-
um, sem ber mishátt við himin. Rætur sínar felur hann
í þeim jarðvegi, er nefnist íslenzkt þjóðlíf, þaðan er
hann runninn og þangað skulu ávextirnir falla.
Ármann Halldórsson.
Skola ocli samhalle,
i.—2. hel'ti þessa árs, lietiir MennlamAlum borizt, en það er sænskt
tímarit um uppeldis- og kennslumál, sem hinn góðkunni skólamaður,
/.. Goltfried Sjöholm í Gautaborg, gefur út. Þetta liefti er allt um
.sálfræðilegar athuganir, m. a. um greindarpróf og orsakir skrópa. —
Skola och samhalle kemur út í 6—8 heftuin á ári og kostar 5- kr.
sænskar árgangurinn.
Sólskin,
barnasögur og ljóð, kom út í Reykjavík á sumardaginn fyrsta, eins
og undanfarin ár. Barnavinafélagið Sumargjöf er útgefandi, en Loftur
Guðmundsson hefur annazt útgáfuna. Hefur hann sjálfur samið
ritið að langmestu leyti, en sögur eru þar einnig eftir Sigurð Helga-
son og Sigrúnu Sigurjónsdóttur. Skemmtilegar teikningar eru í heft-
inu eftir Loft. Að öllu er Sólskin hið læsilegasta að þessu sinni og
góður. fengur yngstu lesendunum.