Menntamál - 01.05.1946, Qupperneq 10
80
MENNTAMAL
Þorleifur frá Jarðlangsstöðum
sjötugur
Þorleifur Erlendsson frá
Jarðlangsst. í Mýrasýslu er
einn þeirra öldurmenna, er
teljast má lærifaðir þriggja
kynslóða. Hann er tveggja
alda maður, ef svo má að
orði komast. Hann er af
þeim stofni 19. aldar, er hóf
sig að mestu með sjálfs-
menntun til þess trausts
og frama að vera tekinn til
þess að kenna öðrum og
miðla af þekkingu sinni. Að
hinu leytinu er hann maður
nýrrar aldar, að hann hef-
ur leitazt við að tileinka sér
þá menntun og menningu, sem hann hefur átt kost á, og
jafnan séð margt gott í hinum nýja tíma. Þannig hefur
hann fylgzt með nýjungum í kennslu og sótt flest kenn-
aranárriskeið, sem haldin hafa verið hér á landi. Er það
til marks um hinn mikla og einlæga áhuga hans fyrir upp-
eldismálum. En auk þess hefur hann verið nálægur á
flestum kennaraþingum, sem haldin hafa verið á íslandi.
Þorleifur hefur nú, er hann stendur á sjötugu, stundað
kennslu með litlum frátöfum um hálfrar aldar skeið.
Þessa er maklegt að minnast, því að hann hefur sætt því
hlutskipti, sem erfiðast þykir í kennslu hér á landi: hann
hefur verið farkennari.
Þorleifur er fæddur á Jarðlangsstöðum 5. marz 1876-