Menntamál - 01.05.1946, Blaðsíða 15
MENNTAMÁL
85
Ólafur Ólafsson skólastjóri
Húsgögn barnaskólans á
Þingeyri eru ekki sam-
kvæmt nýjustu tízku. Þau
eru að gerð og útliti eins
og tíðkaðist fyrir 30—40
árum. En þó sér ekki á
þeim slit eða skemmdir.
Þau eru hvorki krotuð né
flúruð eða skemmd á ann-
an hátt.
Lauslegt yfirlit um
skólastofurnar sannar því
það, að þar hefur sá haft
húsbóndavald, sem gat lát-
ið. til sín taka og mótað
umgengni og heimilisbrag
með stjórn á hönd og huga.
Ólafur Ólafsson skólastjóri er fæddur í Haukadal í
Dýrafirði 13. apríl 1886. Hann ólst upp við alþýðleg
störf á landi og sjó. Faðir hans hafði landsnytjar, en var
þó jafnframt skipstjóri á sumrum, ráðdeildarsamur at-
gjörfismaður og sægarpur.
Þess má geta hér til gamans og fróðleiks um kynstofn
Ólafs, að þessir menn allir eru fjórmenningar við hann:
Ásgeir Ásgeirsson bankastjóri, Bárður Tómasson skipa-
smíðameistari, Björn Guðmundsson fyrrv. skólastjóri á
Núpi, Guðmundur Bárðarson jarðfræðingur og Matthías
Einarsson læknir, svo að nefndir séu nokkrir menn, sem
kunnir eru af ýmiss konar störfum.
ólafur vandist skyldurækni og trúmennsku í föðurgarði.
Þær dygðir hafa orðið honum eiginlegar og fylgt honum,