Menntamál - 01.05.1946, Blaðsíða 17
MENNTAMÁL
87
GUÐFINNA GUÐBRANDSDÓTTIR:
Heimsókn í skóla
(Guðfinna Guðbrandsdóttir, kennari í Vestmannaeyjum, hefur sent
Menntamnlum eftirfarandi grein til birtingar. Ritstj. er ánægja að
birta í tímaritinu stutía pistla um starfsemi einstakra skóla, því að
vel rná slíkt vera lil uppörvunar.)
Síðari hluta vetrar 1943 kynntist ég ungfrú Guðrúnu
Stephensen. Hún var þá kennari við skólann á Kleppjárns-
reykjum í Borgarfirði- í skólanum voru stúlkur á aldr-
inum 14—17 ára, úr Reykjavík og víðar að.
Þennan vetur var ég barnakennari í sömu sveit. Einn
dag í páskafríinu fór ég að Kleppjárnsreykjum til þess
að sjá og kynnast störfum skólans og uppeldisheimilisins
þar.
Nemendur voru þá tíu, og nutu þeir mikillar verklegrar
kennslu. Guðrúnu og ráðskonunni var það áhugamál, að
skólavistin mætti verða námsmeyjunum að sem mestu
gagni í lífinu.
Sumar stúlkurnar voru að læra matreiðslu og algeng
heimilisstörf hjá ráðskonunni, en aðrar alls konar saum
og vefnað hjá Guðrúnu.
Guðrún fór með mig niður í dagstofu, er ég hafði setið
nokkra stund uppi hjá henni, og kynnti mig ungu stúlk-
unum, sem voru glaðar í bragði. Þær voru að spila á
spil, en ein sat og lék á píanó. Guðrún bað nokkrar þeirra
að koma með það, sem þær höfðu unnið í skólanum og
sýna mér. Þær voru fúsar til þess. Þar gafst á að líta, og
undraðist ég, hve miklu þær höfðu afkastað um vetur-
inn. Þar sá ég alls konar fatnað, sem þær höfðu saumað,
ytri sem innri, kjóla, blússur, pokabuxur, síða sloppa og