Menntamál - 01.05.1946, Side 23
MENNTAMÁL
93
ari á Akureyri var hann 1914—16, skólastjóri í Ölafsvík
1916—19, skólastjóri í Mýrarhúsum á Seltjarnarnesi 1919
—22, en síðan haustið 1922 hefur hann kennt við Mið-
bæjarskólann í Reykjavík. Hallgrímur Jónsson fyrrver-
andi skólastjóri Miðbæjarskólans segir um Þorstein, að
hann sé ,,ötull kennari og stjórnsamur". Hann hefur verið
bókavörður skólabóka-
safnsins um langt skeið
og unnið þar mikið starf.
Hann hefur einnig verið í
stjórn kennarafélags skól-
ans og formaður þess um
hríð. — Höfundur þess-
ara lína vann einu sinni
tímakorn með Þorsteini og
Agli Þórlákssyni og minn-
ist þeirra daga oft með
ánægju, því að þá flugu
margar stökur úm bekki,
sumar smellnar, því að
Þorsteinn kann einnig vel
til þeirra hluta.
Um alla þessa fimm
kennara á það við, sem
Snorri Sigfússon skóla-
stjóri segir um kennarana, er hófu starf sitt um líkt leyti
og fyrstu fræðslulög okkar voru sett 1907, en hann segir
svo (í afmælisgrein um Egil Þórláksson í Degi):
,,Þeir hafa um margt átt erfiða aðstöðu og örðugan
starfsdag, verið einskonar landnemar og ruðningsmenn í
fræðslumálum þjóðarinnar. Þáttur þeirra kann síðar að
þykja allmerkilegur, og þá máske ekki sízt fyrir það, hve
,,aktaskriftin“ var fjarri þeim, hve starfsgleðin var djúp
og einlæg og áhuginn sterkur“.
Ölafur Þ. Kristjánsson.
Þorsteinn G. Sigurðsson.