Menntamál - 01.05.1946, Blaðsíða 24
94
MENNTAMÁL
Barnahjálpin
Framkvæmdastjórn Barnahjálparinnar hefur sent
Menntamálum skýrslu um árangur starfsemi sinnar, en
birting hennar hefur dregizt lengur en æskilegt hefði ver-
ið. Skýrslan er miklu lengri en svo, að unnt sé að birta
hana hér í heilu lagi, en þetta eru helztu atriði hennar:
Skólabörn víðsvegar um landið önnuðust söfnunina, og
tóku skólastjórar við fé því, er safnaðist, og sendu það
til fræðslumálaskrifstofunnar, en hún hafði á hendi fjár-
geymsluna, unz fénu var ráðstafað til brottsendingar.
Samkvæmt skilagrein skrifstofunnar nam söfnunin kr.
433903,67.
Rauði-Krossinn íslenzki og Rauði-Krossinn sænski að-
stoðuðu Barnahjálpina við sendingu og úthlutun fjárins.
Sendifulltrúi íslands í Stokkhólmi, Vilhjálmur Finsen, var
óþreytandi í að greiða fyrir framgangi málsins.
Um skiptingu samskotafjárins segir í skýrslu fram-
kvæmdastjórnarinnar:
„Þessu fé hefur verið skipt þannig:
1. 16 þúsund matarpakkar sendir til Noregs í vor (þ. e.
1945). Börnin fengu pakkana um leið og skólar hættu i
vor.... Verðmæti alls ca. 80 þúsund sænskar krónur.
2. Fatnaður sá, er safnaðist, var sendur til Norður-
Noregs í fyrravetur með aðstoð Rauða-Kross íslands og
keypt dálítið í viðbót. Voru það alls 4 kassar. Verðmæti
8000 krónur.
3. Þegar friður komst á í Evrópu, ákvað forstöðunefnd
söfnunarinnar að af fé því, er safnazt hafði til þess að
greiða mánaðargjöld með norskum börnum — fóstursjóð-
urinn —, skyldi haldið alveg sér, en samskotafénu ann-
ars skipt jafnt milli Norðurlandanna þriggja: Noregs,