Menntamál - 01.05.1946, Page 25
MENNTAMÁL
95
Danmerkur og Finnlands. Voru það um 80 þúsund krónur
í hlut. Landssöfnunin til hjálpar Noregi og Danmörku
var hafin um það leyti. í samráði við forstöðunefnd þeirr-
ar söfnunar voru keyptar vörur við hæfi barna fyrir fé
það, er ætlað var Noregi og Danmörku, og sent norskum
og dönskum börnum ásamt bréfi, um leið og landssöfn-
unarnefndin sendi gjafirnar héðan.
Varðandi gjöfina til Finnlands nutum vér aðstoðar
finnska ræðismannsins hér, hr. L. Andersen. Var send
fyrirspurn til Helsinki um það, hvernig gjöfinni yrði
bezt varið. Svarið var á þá leið, að Finnlandshjálpin þar
mundi verja fénu til fatakaupa handa nauðstöddum börn-
um í Lapplandi.“
Þá getur þess í skýrslunni, að lofað hafi verið að styrkja
220 norsk börn í a. m. k. eitt ár, og lögðu sumir þegar
fram fé í því skyni. Þessu fé var ekki unnt að koma áleið-
is af ýmsum ástæðum, og hefur það verið lagt í sjóð, er
kallaður hefur verið „Fóstursjóður Barnahjálpar." Hann
er nú um 50 þús. kr. Framkvæmdanefndin bað einn af
meðlimum sínum, Arngrím Kristjánsson skólastjóra, að
„ræða við norsk yfirvöld um það, hvernig fé þessu yrði
bezt varið í þágu norskra barna,“ en hann var þá staddur
í Noregi, eins og kunnugt er. „Kennslumálaráðherrann
norski lofaði að skipa nefnd manna, er gera skyldi tillög-
ur um það mál. . . . Ennþá höfum vér ekkert heyrt frá
þeim......
Vér erum þakklátir öllum þeim, sem greitt hafa fé 1 sjóð
þennan, og þykir leiðinlegt mjög að hafa ekki enn getað
komið hjálp áleiðis á þennan hátt. En vitanlegt er, að
enn eru mörg hundruð munaðarlaus og hjálparþurfa börn
í Noregi, svo að sjóðurinn mun koma að fullum notum,
þó að síðar verði og nokkuð á annan veg en fyrst var ætlað.
Þegar vér höfum fengið tillögur Norðmanna sjálfra
um þetta mál, munum vér strax skrifa þeim, er loforð