Menntamál - 01.05.1946, Page 29

Menntamál - 01.05.1946, Page 29
MENNTAMAL 99 í Mosfellssveit) má óhætt teljast ágæt bók fyrir telpur á fermingar- alilri og reyndar gott lesefni fyrir hvern sem er. '5f - Gestir á Hamri. Saga eftir Sigurð Helgason. Birgir Sigurðsson teiknaði myndirnar. ísafoldarprentsmiðja gaf út. Reykjavík 1945. 86 bls. Verð: 12,50 kr. í bandi. hað er lÖngu vitað, að Sigurður Helga- son, kennari í Reykjavík, er maður, sem kann að segja sögu. Þó efast ég um, að honum hafi nokkru sinni tekizt betur frásögn en í þessari sögu, svo heilsteypt er hún og persónurnar vel dregnar. Hún er hetjusaga, að austan eða vestan, — ég veit ekki hvort heldur, — en hún segir frá mönnum, sem við Sigurður þekkjum báðir, hvor á sínu landshorni, æðrulausum, orðfáum mönnum, sem aldrei bregðast skyldu sinni. Og frásögnin er mönnunum og efninu samboðin: látlaus, en töluverður þungi í henni. — Sagan er góð fyrir stálpuð börn og ung- linga, vel fallin til lestrar og umræðu í skóla, segir frá því, þegar haf- ísinn kom og björninn gekk á land, samtímis því, að einyrkinn á útnesjabænum þurfti að sækja ljósmóðui inn í fjörð yfir snarbratta hjarnhlíð, en sonur lians 12 vetra gætti bæjar á meðan. Leiðbeiningar mn lestrarkennslu 1—11, eftir ísak Jónsson. Einkum ætlaðar kennaraefnum. Fjölritað. Reykjavík 1946. 12 + 70 bls. Fæst hjá liöl. Nafn bókarinnar segir til um efni hennar, og er bæði hljóð- lestur og raddlestur tekinn til meðferðar, byrjað á upphafinu, þegar börnin eiga að byrja á að nema hljóð stafanna og segja það, og ekki skilizt við, fyrr en lesturinn hefur verið numinn og þjálfaður svo, að fullnægjandi lestrarleikni er náð. Hverju smáatriði er gaumur gefinn og varað við mörgu, sem tafið getur lestrarnámið. Höfundur- inn ætlar bókina fyrst og fremst til stuðnings við kennslu sfna í þess- um fræðum í Kennaraskólanum, en hún er engu síður einkar hentug handbók fyrir livern þann kennara, sem kenna þarf byrjendum lest- ur, ekki síz.t þegar þess er gætt, að mikill fjöldi kennara hefur enga fræðslu fengið um það, hvernig kenna eigi byrjendum lestur, því að ekki eru ýkja mörg ár, síðan kennsla um þau efni var hafin í Kennara- skólanum. Frá því sjónarmiði mætti segja, að þessi bók fsaks væri ekki nægilega glögg og yfirgripsmikil framan til, þar sem rætt er um upphaf kennslunnar, því að hann gerir ráð fyrir, að þeir, sem bók- ina nota, kunni skil á helztu atriðum hljóðaðferðarinnar við festrar- kennslu, og er það auðvitað óhætt, þegar um nemendur í Kennara- skólanum er að ræða, en eklri kennarar hafa margir hverjir aldrei numið þá aðferð. En síðari liluti bókarinnar getur komið hvaða lestrarkennara sem er að miklu gagni. Drög úr kennslufraði. Áttliagafræðileg vinnubrögð. Eftir Isak Jóns-

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.