Menntamál - 01.12.1952, Blaðsíða 11

Menntamál - 01.12.1952, Blaðsíða 11
menntamál 121 Próf í uppeldisfrcðum. Því fylgja kennsluréttindi. Á sama hátt eru kennsluréttindi norrænufræðinga háð prófi í Uppeldisfræðum. Námsefni B-A-deildar til hvorutveggja prófanna mið- ast við þrjú ár. Ákvæði fræðslulaganna, sem getið var í upphafi þessa máls, og framkvæmd þeirra samkvæmt reglugerðarbreyt- ingu háskólans marka þáttaskil í sögu íslenzkrar kennara- ftienntunar. Með þeim er horfið frá tilviljun og glundroða að ákveðnum kröfum um þekkingu og kennsluleikni fram- haldsskólakennara. Þau opna kennaraefnum leið til þess að fullnægja í innlendri menntastofnun nauðsynlegum lág- Uiarkskröfum um undirbúning að starfi. Þegar tímar líða, setti menntun miðskólakennara að geta orðið hliðstæð Uienntun barnakennara, en standa þó væntanlega á hærra stigi; af hverjum kennara er heimtað ákveðið nám, allir verða að Ijúka tilskildum prófum. Sú trú er fávísleg, að ríkið muni jafnan eiga völ mennt- aðra manna að skólum sínum, án þess að þurfa beinlínis að sjá þeim fyrir menntunarskilyrðum. Sparnaður hins °pinbera á þessu sviði er oft furðulega vanhugsaður. í fyrsta lagi er framlag hins opinbera til menntunar aðeins htill hluti þess kostnaðar, sem námsmaðurinn leggur sjálf- ur fram að fjármunum og tíma. í öðru lagi: þegar um er að ræða undirbúning að opinberum störfum, eins og t. d. kennslu, vinnur hið opinbera kennslugjaldið aftur marg- faldað í aukinni starfsgetu kennarans. Sú afstaða hins °pinbera væri því fjarstæð að spara tiltölulega lítið fé, Sem notast á til að þjálfa þá starfskrafta, sem ríkið ætlar síðar að launa í ævilangri þjónustu. Að neita þessu er að Ueita hagnýtu gildi þekkingar yfirleitt, en gegn því mælir reynsla allra menningarþjóða. Á íslandi hefur aukin ^enntun jafnan verið undanfari bætts efnahags. Við fi'ieyrnum stundum þeirri skuld, sem við stöndum í, við feð- Ur okkar og afa á þessu sviði. Þrátt fyrir þröngan f járhag

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.