Menntamál - 01.12.1952, Blaðsíða 26
136
MENNTAMÁL
GuSmundur Pálsson látinn
Kveðjuorð flutt í Mélaskóla
af Arngrími Kristjánssyni skólastjóra
20. des. 1952.
Þetta er í annað skipti
er sigð dauðans er brugðið
í starfsmannahóp þessarar
stofnunar, sem enn er þó
ung að árum, og í þetta
sinn varst það þú, Guð-
mundur Pálsson, sem
varðst fyrir högginu.
Við starfsfélagar þínir
hér við skólann höfum far-
ið þess á leit við frú Ásdísi
og foreldra hennar að þau
leyfðu það, að okkur væri
gefinn kostur á að kveðja
þig hinztu kveðju, einmitt
á þessum stað, fyrst á ann-
að borð hin þungu örlög
þurfa endilega að ráðstafa því á þann veg, að við fengum
ekki notið þeirrar gleði að bjóða þig hingað velkominn
til lífsins, — til barnanna hér í skólanum, — til starfs-
ins, sem þér var svo heilagt, hugljúft og leikandi.
— Síðustu tvo daga hafa kveðið við hér í skólanum
hrynjandi barnshlátrar.
Þrettán hundruð börn hafa safnazt hér saman, hópur
eftir hóp, og haldið jólafagnað sinn með kennurum sín-
G vtSni undur Pdlsson.
um.