Menntamál


Menntamál - 01.04.1970, Síða 8

Menntamál - 01.04.1970, Síða 8
í reglugerð er kveðið svo á, að fjölcli sérbekkja skuli ekki vera meiri en sem svarar 15% af tölu almennra bekkja í sveitarfélaginu. Og í haust var reglan um fjölda nemenda í sérbekkjum end- urskoðuð og er nú sem hér segir: Elcvantal som Klasscns art 1 klass vilkor för 2 klasscr Dárutöver 1 klass i varjc pábörjat. Hjalpklass Lásklass 8—15 Skolmognadsklass 16-2G 14 tal elever Observationsklass Hörselklass 5—8 Synklass Klass för rörelsehindrade 9-14 7 tal elever Nemendavernd Úrtaka nemenda til sérkennslunnar fer fram á eftirfarandi hátt: Ef nemandi á í einhvers kon- ar örðugleikum í skólanum, sem kennarar hans ráða ekki fram úr, kemur málið fyrir nemenda- verndarfund, en þar eiga sæti: skólastjóri eða námsleiðbeinandi (studierektor), skólasálfræð- ingur, skólalæknir, skólahjúkrunarkona, skóla- félagsráðgjafi, starfsráðgjafi og bekkjarkennar- inn. Á nemendaverndarfundinum er tekin ákvörð- un um alhliða eða takmarkaða rannsókn, eftir því sem við á. Áður en rannsóknin hefst, ber bekkjarkennaranum að gera foreldrunum við- vart um örðugleika nemandans, fræða þá um ávinninginn a_f rannsókninni og gera þeim grein íyrir þeirri hjálp, sem unnt er að láta í té. Jafn- vel nemandinn skal fá tilsvarandi upplýsingar, annað hvort frá foreldrunum eða skólanum. hliða aðstæður nemandans. Árangurinn af sér- kennslunni er venjtdega undir samvinnu við foreldrana kominn. Ákvörðunarvaldið Ákvarðanir um sérkennsluna eru síðan tekn- ar af skólastjóra, sem tilkynnir foreldrunum niðurstöðuna og útskýrir fyrir þeim tilganginn með ráðstöfununum. Sætti foreldrar sig hins veg- ar ekki við niðurstöðuna, er málinu skotið til skólanefndar til úrskurðar. Þetta var dænii um l'yrirkomulag sérkennsl- unnar, sem framkvæmcl er innan vébanda al- menna skólans. Dæmið var valið m.a. vegna þess, að Jjað endurspeglar þau viðhorf, sem hvarvetna eru efst á baugi um þessar mundir, jr.e.a.s. að forðast skuli eins og kostur er að fjarlægja af- brigðilega nemendur úr venjulegu skólaum- hverfi. Samvinna við foreldra I>að er talið áríðandi, að samband haldist við foreldrana, meðan á rannsókninni stendur. Enn- fremur er talið nauðsynlegt, að foreldrarnir skýri frá athugunum sínum, sjónarmiðum og óskum og láti í Ijós afstöðu sína til þeirra úrræða, sem skólinn mælir með, svo að hægt sé að meta al- MENNTAMAL 46

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.