Menntamál


Menntamál - 01.04.1970, Blaðsíða 28

Menntamál - 01.04.1970, Blaðsíða 28
Þróun skólans Aukinn skilningur Lengd náms- tímans Tilhögun námsins október úrið 1946 tók svo Upp- eldisskóli Sumargjafar til starfa. Skólastjóri hefur frá upphafi verið frú Valborg Sigurðardóttir, upp- eldisfræðingur. Arið 1957 var nafni skólans breytt, og heitir hann nú Fóstruskóli Sumargjafar. í upphafi vakti skóli þessi ekki mikla athygli eða áhuga ungra kvenna. Fyrstu nemendur skólans brautskráðust vorið 1948, voru þeir 9 talsins. Munu í fyrstu fjórum ár- göngunum hafa verið jirjátíu stúlkur samtals og þá aðeins inn- ritað annað hvort ár. Óhætt er að fullyrða, að skilningur almennings á mikilvægi fóstrustarfsins hefur vaxið með árunum, og má geta jiess, að nú eru í Fóstruskólanum fimmtíu og sex nemendur í tveim- ur bekkjardeildum, auk þess eru Jrrjátíu og sex forskólanemar við verklegt nám á barnaheimilunum, og eru því nemendur jretta skóla- ár níutíu og tveir talsins. A jæssu vori mun skólinn að öllum líkind- um brautskrá tuttugu og sex nem- endur, og verða þá fóstrur, sem lilotið hafa menntun sína við skól- ann, tvö hundruð fjörutíu og sjö, og eru margar jreirra í starfi víðs vegar um land, þótt fjölmennastur sé liópurinn, sem starfar á vegunt Reykjavíkurborgar. Þá hafa nokkr- ar fóstrur aflað sér framhalds- menntunar, einkanlega í sambandi við heyrnardauf og taugaveikluð börn. Eins og sést af framanskráðu tek- ur fóstrumenntunin nú jnjú ár. Til inngöngu í skólann er nú krafizt lands- eða gagnfræðaprófs. Fyrsta árið koma nemendur á bók- legt námskeið um miðjan septem- ber. Er þá larið yfir starfshætti á barnaheimilum, hjálp í viðlögum o.fl. Frá fyrsta september lil apríl- loka eru jressir forskólanemendur, eins og þeir eru kallaðir, við störf á barnaheimilum og hafa Jjá laun. í fyrsta bekk skólans setjast jjeir síðan næsta haust, 1. október, og eru Jjá við bóklegt nám 7 mánuði að undanskildum einuni degi í viku, sem jieir cru við verklegar Náms- greinar Erfið ytri skilyrði Lausn húsnæðis mála Þrjátíu fóstrur á ári æfingar á barnaheimilunum. Frá 1. maí til 1. október jiað ár er verið við störf á barnaheimilum, og hafa nemarnir þá jjriggja vikna sumar- frí. Þessi sumarvinna er launuð. Lokaáfangi námsins er svo bók- legt nám í öðrum bekk skólans, frá 1. október fram í maí, að und- anskildum einum mánuði, en þá eru nemarnir við verklegt nám. Námsgreinar í 1. bekk eru: Barnasálarfræði, meðferð ung- barna, heilsufræði, félagsfræði, ís- lenzka, danska, föndur, gítarleikur, sögur og kvæði, söngur og teikning. í öðrum bekk eru jjessar náms- greinar: Sálarfræði, uppeldisfræði, framsögn, næringarefnafræði, ís- lenzka, danska, sögur og kvæði, söngur, föndur, smíðar, teikning og gítarleikur. Annað livort námsárið fá nemendur stutt námskeið í ryt- mik. Skólinn liefur lengst af búið við erfið ytri skilyrði. Fram til ársins 1964 var liann jafnan til húsa í einni stofu á einhverju barnaheim- ilinu. Kom liann þau ár við í Steinahlíð, Grænuborg, Tjarnar- borg (tvisvar) og Flagaborg. Flaust- ið 1964 flutti hann að Fríkirkju- vegi 11 í sambýli við Æskulýðsráð, unz hann flutti í núverandi húsa- kynni í Lækjargötu 14 B haustið 1969. Verða það að teljast hin merkustu tímamót í sögu skólans. Þetta gamla hús, sem Búnaðarfélag Islands reisti á sínum tíma, hentar skólanum rnjög vel. A efri hæð cru tvær stofur fyrir bóklega kennslu og á neðri hæð smlða- og föndur- stofa, herbergi fyrir skólastjóra og kennara og hreinlaatisherbergi. Eins og samgöngum er háttað er staðsetningin hin ákjósanlegasta og ekki spillir útsýnið ylir Tjörnina. Eins og er mega því málefni Fóstruskólans teljast í allgóðu horfi. Skólinn lielur fengið gott Kúsnæði, aðsókn er mikil og vax- andi og líkur á, að um þrjátíu fóstrur brautskráist árlega á næst- unni. Með Jjví verður vel séð fyrir þörfum barnaheimilanna l'yrir sér- menntað staríslið. M ENNTAMÁL 66

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.