Menntamál


Menntamál - 01.04.1970, Side 11

Menntamál - 01.04.1970, Side 11
hópum, að náms- og uppeldismarkmiðin hverfa í skuggann, enda er lausn ýmissa slíkra sértækra vandkvæða iðulega skilyrði þess, að um nám eða uppfræðslu geti orðið að ræða. Þó er það talið grundvallaratriði, að nemendurnir, hversu fatlað- ir sem þeir eru, fái aldrei tilefni til að líta á sig sem sjúklinga, heldur séu þeir aldir upp og þjálfaðir til að taka við skyldum og réttindum í þjóðfélaginu, eins og aðrir þegnar. Ytra skipulag Sérskólarnir eru ýmist hreinir ríkisskólar eða reknir af sveitarfélögunum með ríkisstyrk. Bæði er um heimavistar- og heimangöngu / lieiman- akstursskóla að ræða. Sérskólaráðið hefur í tillögum sínum um upp- byggingu sérskólanna byggt á þeirri grundvallar- hugmynd, að nemendur á barnastigi (6—7 fyrstu skólaárin) skuli, þar sem því verður við komið, fá kennslu í heimangöngubekkjum, svo að þeir geti búið heima hjá sér og fengið eins lengi og kostur er að þroskast í eðlilegu heimilisumhverfi. Sem dæmi um, hve sterk tilhneiging er ríkjandi um að forðast heimavist má nefna, að ekki þykir tiltökumál, þótt barn í vanvitaskóla þurfi dag- lega að ferðast í 2 klukkutíma til og frá skóla. Staðsetning lieimavistarskólanna er einnig við það miðuð, að sambandið við heimilin geti orðið sem traustast. Inntaka nemenda í sérskóla Samkvæmt sérskólalögunum ber hverri skóla- nefnd að senda tilkynningar til viðkomandi fræðslustjóra um börn og unglinga búsetta í sveitarfélaginu, sem skólaskyld teljast í sérskól- um, þ. e. a. s. börn með skerta sjón, heyrn eða greind. Fræðslustjórinn sendir tilkynningarnar áfram til menntamálaráðuneytisins, en það felur síðan einhverjum sérskólanna, sem hefur upp- töku- og athugunardeild, að rannsaka nemand- ann — jafnvel þótt fyrir liggi niðurstöður frum- rannsóknar skólasálfræðings heima í héraði. Slík aihliða rannsókn tekur venjulega 2ja vikna tíma, þar sem til koma sérfræðingar í ýmsum greinum auk sérkennara og heimavistarstarfsliðs. Þegar niðurstaða liggur fyrir, tekur ráðuneytið ákvörðun um vistun nemandans í viðeigandi sérskóla eða uppeldisstofnun. Ríkið greiðir allan beinan kostnað í þessu sambandi, t. d. ferða- og dvalarkostnað foreldris eða fylgdarmanns. Þegar um er að ræða vistun í sérskóla fyrir börn og unglinga með hegðunarvandkvæði, fær ráðuneytið tilkynningarnar frá barnaverndar- nefndunum. Skólanefndir eru ekki aðilar að mál- inu, en venjulega er liaft samráð við þær. Gert er ráð íyrir þeirri undantekningu í lögunum, að foreldrar geti beðið um skólavist fyrir börn sín án þess að til komi samþykkt barnaverndarnefnd- ar. í sérskólana fyrir börn með skerta greind (spesi- alskolene for evneveike) eru yfirleitt ekki tekin börn með lægri greind en ca. 50 greindarvísitölu- stig og heldur ekki með hærri greind en ca. 75 stig. Vandi Jreirra, sem liggja ofan Jressara marka, er leystur í almennu skólunum, en hinna, sem liggja neðan við Jrau, á fávitahælum. Fávita- hælin heyra undir heiibrigðisráðuneytið, og sú sérkennsla, sem þar fer fram, er enn ekki í tengsl- um við skólakerfið — livað sem verður í fram- tíðinni. Sama gildir um stofnanir fyrir geðsjúk börn (barne- og ungdomspsykiatriske poliklin- ikker, barne- og ungdomspsykiatriske avdelinger og barne- og ungdomspsykiatriske behandlings- hjem). MENNTAMÁL 49

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.