Menntamál


Menntamál - 01.04.1970, Side 14

Menntamál - 01.04.1970, Side 14
aðlögun eða grípa óheillavænlega inn í líf ann- arra má skipta í þrjá flokka: 1) Sálsjúk börn, sem þurfa vist á geðsjúkrahúsi eða hæli fyrir taugaveikluð börn. Stærð þessa hóps mun vera u. þ. b. 1%C af barnafjöldanum. 2) Andfélagsleg börn, sem alist hafa upp í mjög gölluðu umhverfi og þurfa vist á fóstur- heimilum eða uppeldisstofnunum. Vænta má að u. þ. b. 3°/oo barnafjöldans sé í þessum hópi. 3) Börn með vægari hegðunarvandkvæði, sem þurfa vist í sérbekkjum almenna skólans. Fjöldi þeirra mun vera u. þ. b. 2/o af barnafjöldanum. VI. Börn með skerta mál- og talfærni Börnum með málörðugleika af ýmsu tagi má skipta í 2 hópa: 1) Börn með framburðargalla, raddveilur, hljóðfallsgalla og táknferlisgalla. Fjöldi u. þ. b. 3% af barnafjöldanum. 2) Börn með skynræna lestrar/skriftarörðug- leika. Fjöldi þeirra mun vera u. þ. b. 1% af barnafjöklanum. Langflest barnanna í báðum hópunum geta notið meðferðar í almennu skólunum, án þess að nám þeirra raskist, en nokkur börn úr dreif- býlinu þurfa á heimavist að halda, þar sem kennsluaðstaða er fyrir hendi, um lengri eða skemmri tíma. VII. Börn með tímabundna námsörðugleika Oðrum börnum en þeim, sem að framan grein- ir, og ekki geta fylgst með jafnöldrum sínum í einni eða fleiri námsgreinum, má skipta í tvo flokka: 1) Óskólaþroska börn við upphaf skólagöngu, sem þurfa vist í sérstökum forskólabekk fyrsta veturinn. Fjöldi þessara barna mun vera u. þ. b. 8—10% af 7 ára árganginum, að óbreyttum kennsluháttum í 1. bekk. 2) Börn með tímabundna námsörðugleika, að- allega í móðurmáli og reikningi, sem þurfa ein- staklingsbundna hjálp umfram það, sem hægt er að veita í venjulegum bekkjum, ýmist í formi einstaklingskennslu, hópkennslu eða vistar í sér- stökum lesbekk. Gera má ráð fyrir, að u. þ. b. 10% af barnafjöldanum þurfi einhvern tíma á skólagöngu sinni á slíkri aðstoð að halda, að óbreyttum kennsluháttum. Nokkrar heimildir: Skolöverstyrelsen: Lároplan för grundskolan, Liber 1969. Kirke- og undervisningsdepartementet: Om utbygging av spesial- skolene, Stortingsmelding nr. 42, Oslo 1964. Kirk: Educating exceptional children, Boston 1962. Spesialskolerádet: Undervisningsbygg for spesialskoler, Oslo 1965. Tordrup: De læseretarderede og derse pedagogiske behandling, Gyldendal 1969. Varming: Svagtbegavede börn I., Gyldendal, 1969. Thomsen: Svagtbegavede börn II., Gyldendal, 1970. Kirke- og undervisningsdepartementet: Veiledning for ordningen av hjelpeundervisningen i folkeskolen, Oslo. Undervisningsministeriet: Folkeskolens specialundervisning, Kpben- havn, 1961. MENNTAMÁL 52

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.