Menntamál


Menntamál - 01.04.1970, Blaðsíða 27

Menntamál - 01.04.1970, Blaðsíða 27
Þórunn Einarsdóttir, forstöðukona: Fóstrumenntun r á Islandi Nýjar stofn- anir Breyttir þjóð- félags- hættir Aukin verka- skipting Dagheimili og leikskólar eru iil- tölulega nýjar stofnanir í þjóðfélagi okkar, og hefur nú, einkum á síð- ustu árum, skapazt mikil og sívax- andi jjörf fyrir J)ær vegna breyltra þjóðfélagshátta. Aður fyrr bjó allur jjorri jjjóðar- innar í sveitum og litlum sjávar- Jíorpum. í uppvextinum vöndust börnin á að taka þátt j störfum fullorðna fólksins. Féll ])ví lífið 1 líkan farveg frá einni kynslóð til annarrar, og ])ar með voru allir uppeldisliættir fastmótaðir, byggðir á reynslu fyrri kynslóða. En á ])essari öld hefur orðið mik- il breyting á öllunt okkar þjóð- félagsháttum, og er nú svo komið, að meiri hluti þjóðarinnar býr í þéttbýli og þá sérstaklega I Reykja- vik, sem telur nú yfir áttatíu þús- und manns. Liggur í hlutarins eðli, að slík breyting kallar á annað l’yr- irkomulag í uppeldisháttum en tíðkazt hefur. Heimilin eru oftast fámenn, að- eins foreldrar og börn, og í sum- um tilfellum aðeins móðir og barn eða börn. Mæður stunda vinnu fjarri heimilinu, og kemur þá að því, að dagheimili og leikskólar verða brýn nauðsyn, og varðar þá mestu, að vel sé vandað til slíkra stofnana og börnunum búin eins góð skilyrði og frekast er kostur. Góður ytri aðbúnaður er sjálfsagð- ur og nauðsynlegur, en gott starfs- lið, sem er vandanum vaxið, verður Afdrifa- ríkustu æviárin Frum- kvæði Sumar gjafar Stofnun Fóstru- skóla þó ætíð þyngst á metunum, og á því byggist fyrst og írernst velferð barnanna. Talið er, að fyrstu sex til sjö árin séu afdrifaríkust í ævi manns- ins og á því skeiði sé lagður grundvöllur að mótun einstaklings- ins, ]). e. a. s. tilfinninga-, vit-, félags- og verkþroska ltans. Má því ljóst vera, hversu mikil ábyrgð livíl- ir á þeim, sem annast börn á þessu aldursskeiði, því lengi býr að fyrstu gerð. Árið 1924 var Barnavinafélagið Sumargjöf stofnað. Fyrstu árin hafði félagið aðeins dagheimilis- starfsemi á sumrin. Eftir 1940 var ört vaxandi þörf fyrir barnaheimili. Kom þá fljótt í ljós, hversu erfitt var að reka þessar stofnanir án sérmenntaðs starfsliðs, og fóru Jjessi vandkvæði stöðugt vaxandi, eftir ])ví sem Sumargjöf færði út kvíarn- ar, og var forráðamönnum félags- ins það fullljóst. Snemma á árinu 1945 samþykkti stjórn Barnavinal'élagsins Sumar- gjafar tillögur Þórhildar Ólafsdótt- ur, forstöðukonu í Tjarnarborg, um, að félagið kæmi á fót skóla, er hefði það að markmiði að veita stúlkum menntun til að stunda fóstrustörf á barnaheimilum, og einnig að veita slíkum heimilum forstöðu. Skyldi skólinn miðaður við tveggja ára nám. Leitað var til ríkis og Reykjavíkurbæjar um fjárhagslegan stuðning. Þann 1. MENNTAMÁL 65

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.