Menntamál


Menntamál - 01.04.1970, Blaðsíða 39

Menntamál - 01.04.1970, Blaðsíða 39
átta sig á merkingu samsettra orða, ættu ekki að fást við æfingar í að greina hvort orð eru laust samsett, fast samsett eða bandstafssamsett. Tenging í stað greiningar Sé það rétt niðurstaða, að bæði í skyklunámi og framhaldsskólum sé málskilningi og málnotk- tin nemenda mjög ábótavant, og málfræðikennsla í núverandi mynd bæti lítið eða ekkert um, er óhjákvæmilegt að leita frekari svara við spurn- ingunni um livað eigi að kenna í staðinn. Ég lief áður rætt um aukna þýðingu og hlutverk bókmenntalestrar í skólum í grein sem birtist í Menntamálum 1. h. ’67 og mun ekki fjalla um þá hlið hér. Rétt er að leggja sérstaka áherzlu á að þættir móðurmálskennslunnar þurfa að tengj- ast betur og mynda samræmda heild. Skilningur á mæltu og síðar rituðu máli hlýtur að verða höfuðviðfangsefni í fyrstu bekkjum barnaskól- ans og jafnframt munnleg og síðan skrifleg notk- un þess. Síðar þarf að vekja athygii á orðavali, blæbrigðum, fjölbreyttum möguleikum sem málið geymir, vekja t. d. athygli á því livað greinir áhrifamiklar frásagnir og lifandi lýsingar frá því efni sem fellur dautt. Málið á ekki að skoða sem fast form og láta þar staðar numið, heldur þarf að skoða það sem tæki til mannlegra samskipta, braut sem hugsanir manna og tilfinningar brjóta sér leið eftir í leit að formi. Innihaldið, efnið ákvarðar fonnið. Markmið betri samræmingar og leitar að nýju inntaki í móðurmálskennslunni ætti að vera það að dýpka skilning nemandans á merkingn málsins og boðskap við ólíkar aðstæð- ur, vekja gagnrýna atbygli þar sem það á við, en opna leið til sem ríkastrar innlifunar við aðrar aðstæður. Jafnframt því sem nemendur öðlast betri skilning á mismunandi eðli og fjölbreyti- legunr möguleikum málnotkunar við ólíkar að- stæður (í auglýsingum, kunningjabréfum, frétta- klausum, ljóðum, svo dæmi séu nefnd) þarf að leitast við að styrkja og þroska hæfileika ]tein-a og meðfæddan áhuga á að gera málið að þjálu tæki til að tjá hugsanir sínar og lilfinningar við breytilegar aðstæður og í mismunandi til- gangi. Strax frá uppliafi skólagöngu þarf að leit- ast við að varðveita og örva eðlilega gleði og álruga barna á ævintýralegum könnunarleiðangr- um um óþekktar lendur málsins. Fyrir skólagöngu hafa þau lært málið með því að hlusta (athuga) og babla síðan og bjástra við málið sjálf, leika sér að því, villast, hrasa en standa svo upp og halda áfram. í skólanum þarf að forðast strangar leiðréttingar, fyrirmæli og æfingar sem nemend- um virðast tilgangslausar. Þar verður að skapa aðstæður sent líkjast því sem gerist í daglegu lífi, bjóða fjölbreytla möguleika á að reyna og leita, veita hvetjandi aðstoð. Málfræðileg hugtök mætti svo uppgötva í þessu starfi og nota þau í umræðum um leið og þörf er fyrir þau og þroski nemendanna leyfir. Slík hugtök ætti þó alls ekki að nota fyrst og fremst til greiningar, heldur til notkunar málsins. Það hefur t. d. meira gildi að fá nemendum það verk- efni að finna lýsingarorð senr hæfa í ákveðnum tilgangi (hvaða lögun hefur ... ., hvaða lit hef- ur ....?) en að láta þá finna lýsingarorð í rnein- ingarlausum og sundurlausum texta. Samsetning lýsingarorða og athugun á vali og hlutverki lýs- ingarorða, umræða um hvort þau eru merkingar- rík eða óþörf, nákvænr eða ónákvæm, hlutlaus eða hlutlæg o. s. frv. í mismunandi textum, er ólíkt frjórra og skemmtilegra viðfangsefni fyrir nemendur eti þær einhliða æfingar sem tíðkast í lrinni hefðbundnu málfræðikennslu með grein- ingu í orðflokk, kyn, tölu, fall, beygingu stig og stöðu. Þess verður að minnast að það er mál- skilningur og málnotkun en ekki beyging málsins og greining Jiess sem veldur nemendum vand- kvæðum í viðleitni sinni til að verða fullgildir ])j(iðfélagsþegi 1 ar. Endurskoða þarf frá grunni hugtakaforða og æfingar sem kenndar verða með hliðsjón af nýjum markmiðum kennslunnar og nýjum landvinningum og niðurstöðum málvís- indanna, sem gildi hafa fyrir kennslu á lægri skólastigum. Skera þarf niður og kasta burt því sem ekki er þörf fyrir lengur og engum lilgangi þjónar. Hér verður ekki reynt að skýra nákvæmlega hvaða leiðir má fara til að tengja alla þætti móð- urmálskennslunnar í eina heild. Þess verður að MENNTAMÁL 77

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.