Vorið - 01.03.1948, Síða 5

Vorið - 01.03.1948, Síða 5
JANÚAR—MARZ 1948 VORIÐ 1. HEFTI 14. ÁRGANGUR AVARP Kæru, ungu vinir. Þegar Vorið er nú að hefja 14. árið sitt, viljum við ávarpa ykkur nokkrum orðum. Fyrst viljum við þakka við- skiptin á liðnum árum og alla tryggð ykkar við Vorið, þakka öll elskulegu og vingjarnlegu bréfin, sem þið hafið sent okkur, og við vonum, að þið hald- ið áfram að senda okkur, þakka alla að- stoð ykkar við útbreiðslu Vorsins og innheimtu og margt fleira. Samkvæmt eindregnum óskum margra kaupenda stækkar nú Vorið um 8 síður hvert hefti, eða 32 síður alls. Svarar það til þess, að heilu hefti sé bætt við. En vegna þessarar breyting- ar, lilýtur verðið að hækka lítið eitt, eða um 2,00 kr. Verður árgangurinn þá 8,00 kr. Þegar þess er gætt, að fyrir þetta fáið þið 160 blaðsíða bók í stóru broti, er ekki hægt annað að segja en það séu ódýr bókakaup, miðað við bókaverð nú á íímum. Því vonum við, áð enginn kaupandi setji þessa hækkun fyrir sig, heldur verði þessi stækkun á ritinu miklu fremur til að auka vinsældir þess og útbreiðslu, cn kaupendum hefur nú fjölgað jafnt og þétt hin síðari ár. Jafnframt þessari stækkun verður reynt að gera ritið enn betur úr garði en áður, t. d. f jölga myndun, og hefst nú þegar í þessu hefti ný myndasaga, sem við vonum að verði vinsæl. Gott væri einnig að fá frá ykkur sitt- hvað til birtingar í ritinu, svo sem ýmsar þrautir, stuttar sögur, frásagnir, vísur og myndir. Það mun verða reynt að birta það smátt og smátt. Reynið svo umfram allt að útvega Vorinu nýja kaupendur. Því fleiri kaupendur, sem það fær, því betur er hægt að gera það úr garði. Hefti þessu fylgir áskriftarseðill, sem þú ert beðinn að sýna kunningja þínum. Ef hann vill gerast kaupandi, þarf hann ekki annað en útfylla seðilinn og senda okkur hann. Mun hann þá fá ritið um hæl. Athygli skal vakin á því, að nýir kaupendur fá síðasta árgang (1947) ókeypis, meðan upplagið endist. Er því vissast að senda pöntun sem fyrst. Takmarkið er að fjölga kaupendum í ár um 500. Með kærri kveðju. Hannes J. Magnússon. Eiríkur Sigurðsson.

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.