Vorið - 01.03.1948, Blaðsíða 18

Vorið - 01.03.1948, Blaðsíða 18
VO RIÐ 14 þegar ég kem úr skólanum. Og svo verð ég fyrir því happi, að frændi gefur mér peninga ein- mitt núna. ULLA: En þú manst, hvað frændi sagði áðan, að við ættum að verja þessurn peningum vel. Heldurðu að það sé skynsamlegt að kasta peningum út fyrir munnhörpu? SVEINN: Ég lield nú, að frændi liafi átt við það, að við ættum að nota peningana til að kaupa okk- ur eitthvað, sem við hefðum gam- an af. Ég sá það á honum, að hann átti við þetta. En hvað ætlar þú að kaupa? ULLA: Ég ætla að leggja mína pen- inga inn í bankann. SVEINN. Nei, ég trúi því ekki, að þú gerir það. Þú átt líka að kaupa þér eitthvað skemmtilegt, eitt- hvað, sem þig langar til að eiga. ULLA: Jæja, þér finnst það? Ég veit reyndar, hvað mig langar til að eignast. Mig langar voða mikið til að eignast fallegan bolta. Gamli boltinn minn er orð- inn svo linur, að það er varla hægt að leika sér með hann. SVEINN: Þú átt auðvitað að kaupa boltann, á því er enginn vafi, fyrst þig langar til að eiga hann. ULLA: Já, en ég held nú að þetta verði talin óþarfa eyðslusemi. Kennslukonan segir alltaf, að við eigum að vera sparsöm. SVEINN: Spara, spara! Þá eignast maður aldrei neitt, sem gaman er að eiga. ULLA: Ertu alveg ákveðinn í því að kaupa munnhörpuna? SVEINN: Já, alveg kaldur og ákveð- inn. Ég kaupi hana nú, þegar ég fer heim. ULLA: Þá, — Þá ætla ég líka að kaupa boltann. Þei — þei. Það er einhver að koma. ('Blindur maður kemur inn. Hann hefur band um handlegginn, þreifar sig áfrarn með stafnum sínum og sezt síðan á bekkinn). BLINDI MAÐURINN: Viljið þið kaupa kvæði blinda mannsins? Verið þið nú góð og kaupið þið kvæði blinda mannsins. Kaupið kvæði blinda mannsins. ULLA: (við Svein) Hver er þetta eiginlega? Hvað merkir þetta band, sem hann hefur um hand- legginn? SVEINN: Svona bindi gult, með svörtum blettum, hafa allir blind- ir menn, svo að ökumenn varist að aka á þá á götunum. Hann er blindur. ULLA: Sér hann alls ekkert? SVEINN: Nei, hann er alveg stein- blindur. ULLA: Ósköp á maðurinn bágt að sjá ekkert. Það er eins og hann gangi alltaf í þreifandi myrkri. SVEINN: Já, það hlýtur að vera voðalegt. ULLA: Þá getur hann heldur ekk-

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.