Vorið - 01.03.1948, Blaðsíða 37

Vorið - 01.03.1948, Blaðsíða 37
V O RIÐ 33 KARTAFLAN Fullum kartöíluvagni var ekið eitir þjóðveginum. Þær hoppuðu og dönsuðu liver ofan á annarri, og loks valt ein kartafla út úr vagnin- um og niður á þjóðveginn. Litlu síðar komu menn gangandi eftir veginum, sem spörkuðu til hennar, svo að hýðið flagnaði af henni. Skömmu síðar kom fátækur verkamaður gangandi eftir vegin- um. Hann tók kartöfluna upp, bar hana heim og setti liana niður í garðinn sinn, því að þetta var að vori til. Og kartaflan spíraði í moldinni, enda liirti fátæki maður- inn vel um hana. Hann hafði ánægju af að vita, hvað út af þessari fundnu kartöflu gæti vaxið. Hann sá kartöflugrasið hækka og þrosk- ast, en niðri í jörðinni voru að vaxa nýjar og fallegar kartöflur. Um liaustið tók hann kartöfluna upp. Tíu nýjar og faUegar kartöflur Fomu upp úr moldinni, sem verka- niaðurinn geymdi svo til næsta vors. Þá setti hann þær niður og nú áttihann svolítið kartöflubeð. Myiulin af Gunnari á Hlíðarenda er eft • lr Halldór Pétursson listmálara, og e úr bókinni FAXI eftir dr. Brodda Jó- hannesson, sem bókaútgáfan NORÐRI gaf út. Árin liðu. Á hverju vori setti hann kartöflurnar niður í garðinn sinn, og allar voru þær komnar út af fundnu kartöflunni, og nú átti hann dálítinn, snotran kartöflu- garð. Nú var liann farinn að selja kartöflur í skeffutali, já, meira að segja í tunnutali. Hann seldi þeim, sem hafði týnt kartöflunni og einn- ig þeim, sem hafði sparkað í hana, þegar hún lá á þjóðveginum forð- um. Þetta gaf tekjur í aðra hönd, gljáandi peninga. Nú gat hann keypt sér dálítinn landskika í við- bót, sem lá að garði hans. Hann girti nú allt land sitt og nú átti hann heilan kartöfluakur. Þar sást nú beð við beð og röð við röð. Þetta var blómlegur akur. En nágrannarnir sögðu: „Þetta er ötull og duglegur maður.“ En þeir vissi ekki, að ein einasta kartafla var undirstaða þessarar velmegunar mannsins. Næsta ár seldi hann aftur kartöfl- ur, og nú heil vagnhlöss í einu. Skip lá á höfninni, og þangað var nú kartöflunum ekið. Og þegar hann sneri heimleiðis aftur, hafði hann fulla vasa af beinhörðum peningum. Hann var nú orðinn efnaður maður. Á heimleiðinni sá

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.