Vorið - 01.03.1948, Blaðsíða 43

Vorið - 01.03.1948, Blaðsíða 43
VORIÐ 39 Dægradvöl Bráðum kemur blessað vor bjart og hlýtt í dalinn. 1. Eitt kvöld, þegar Siggi litli sótti kýrnar, hafði hann með sér berja- fötu og tíndi 6 lítra af bláberjum. — Hann gaf systkinum sínum nokkra hnefa, þegar hann kom heim. Hve marga lítra gaf hann og hve marga lítra seldi hann, þegar það, sem hann gaf, var helmingur af því, sem hann seldi? 2. Hans er núna 32 árum eldri en son- ur hans. Næsta ár verður hann 5 sinnum eldri en sonurinn. Hvað eru þeir gamlir hvor um sig? Ráðið þessa krossgátu: 4. Lárétt: 1. Ofan á fæti. 5. Gælunafn á telpu. 6. Þar sem gengið hefur verið. 7. Kona í Gamla- Testamentinu. Lóðrétt: 1. Það, sem flengt er á. 2. Ekki vel. 3. Seinagangur. 4. Gott hey. 5. Að þessu sinni sendir „Vorið“ ykk- ur tvo vísuhelminga til að botna. — Sendið blaðinu botnana og skýrið frá aldri ykkar. — Beztu botnarnir verða birtir síðar. Á himni hækkar sólin og húmið burtu fer. RAÐNINGAR A DÆGRADVÖL í 4. hefti 1947: 1. Prentvillupúkinn gerði okkur grikk. Áætlunarbíllinn átti að fara 7.36. Siggi afklæðir sig meðan hann lætur renna í baðkerið og kemur að bíln- um 2 mínútum áður en hann fer. 2. 2. Janúar. 3. Engin. Hinar flugu. 4. Snigillinn, því að hann ber húsið sitt á bakinu. 5. Klukkan. 6. Nöfnin okkar. 7. Anna. Hanna. BRÉFASKIPTI. Þessi börn óska eftir að komast í bréfasamband við börn einhvers staðar á landinu. Æskilegur aldur tilgreindur í svigum: Dýrfinna Ósk Andrésdóttir, Ytri-Hól, Vestur Landeyjum (14—16). Friðrik E. Kristinsson, Hlín Kristins- dóttir, Geysi, Djúpavogi (11—13). Stefanía Guðmundsdóttir, Vegamóti, Vopnafirði (13—14). Sigrún Þorgeirsdóttir, Skálanesi, Vopnafirði (12—13). Hreinn Gunnarsson, Hóli, Vopnafirði (13-14). Marteinn Vigfússon, Sunnuhvoli, Vopnafirði (13—14). rialldór Magnússon, Hamri við ísa fjarðardjúp (14—16). Svanhildur Halldórsdóttir (9), Krist- ín Halldórsdóttir (8), Laugum, Suður- Þingey j arsýslu. Erik Hansen, Klintevej 38, Risskov, Danmark (14 ára frímerkjasafnari). Elín Sesselja Guðmundsdóttir, Heimagötu 28, Vestmannaeyjum (12—

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.