Vorið - 01.03.1948, Blaðsíða 30

Vorið - 01.03.1948, Blaðsíða 30
26 VO RÍÐ CARL EWALD: SKÓGURINN og HEIÐIN Það var einu sinni yndislega fallegur skógur raeð þúsundum beinvaxinna stofna og þyt og söng í skuggasælum krónum. Allt í kringum skóginn lágu engi og akrar. Þar hafði bóndinn byggt sér bæ. Engið og akrarnir gáfu af sér góða uppskeru. Bóndinn var ið- inn og þakklátur fyrir jarðargróð- ann, sem iiann flutti heim. En yfir þessu öllu stóð skógurinn, eins og herramaður. Á veturna lögðust akrarnir undir snjóinn og lágu þar svo vanmáttug- ir og umkomulausir. Engið lá allt undir gljáandi ísi, og bóndinn hnipraði sig saman í ofnkróknum. En skógurinn stóð alltaf jafn bein- vaxinn og rólegur með nöktu grein- Litli-Jens lá lengi kyrr. Svo sagði hann: „Hugsaðu þér, mamma, ef Ruglaði-Jens hefði ekki verið ná- kegur þann dag! Ég skal vera hon- um reglulega góður hér eftir. Á morgun fer ég til hans! Má ég það ekki, mamma?“ Móðir hans leyfði honum það, klappaði á kinnina á honum og fór. En Litli-Jens vakti lengi þetta kvöld, og hugsaði í fyrsta skipti í al- vöru um, hve lífið er undarlegt. (E. S. þýddi). arnar sínar og lét storminn og hríð- ina geysa, eins og þau lysti. En þeg- ar vorið kom, grænkuðu bæði engi og akrar, og bóndinn kom út og plægði og sáði. En skógurinn klædd- ist í slíkt hátíðaskrúð, að því getur enginn lýst. Blómin breiddu út krónur sínar við fætur hans. Sólin skein á grænar krónurnar. Fugla- söngur kvað við úr hverjum runni. Alls staðar var ilmur, töfrandi litir og hátíð. Svo bar það við einn sumardag, jægar skógurinn veifaði grænu greinunum sínum, að hann kom auga á eitthvað brúnleitt, sem færð- ist hægt og hægt um hæðirnar í vestri. „Hvers konar náungi ert þú eig- inlega?" spurði skógurinn. „Ég er heiðin,“ sagði brúni gest- urinn. „Ég þekki þig ekki,“ svaraði skógurinn, „og mér er ekkert um þig gefið. Þú ert eitthvað svo ljótur og svartur, allt öðruvísi en akrarnir og engið. Þú ert sannarlega ekki líkur neinu, sem ég hef áður séð. Getur þú sprungið út? Getur þú blómgast? Geturðu sungið?" „Víst get ég þetta,“ svaraði heið- in. „í ágústmánuði, þegar blöðin

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.