Vorið - 01.03.1948, Blaðsíða 15
VO RIÐ
11
stúlku, sem var næst fyrir aftan
okkur í röðinni. Hún bað okkur
að liafa hana í klefa lijá okkur, og
gæta þess, að hún hallaði sér ekki
út um lestargluggann og hjálpa
henni til að komast í rétta lest í
Stokkhólmi, því að hún væri að fara
norður í Ljusdal í Svíþjóð. Stúlkan
hét Gréta, en það var frænka henn-
ar, sem bað okkur fyrir hana. Um
hálsinn á lienni var bundið merki-
spjald með nafni hennar og heim-
ilisfangi þess staðar, sem hún ætlaði
til. Eg lield að Gréta hafi ekki ver-
ið neitt upp með sér af þessu spjaldi
og geymdi hún það undir kjólnum.
Þannig vildi það til, að ég kynnt-
ist Grétu. Hún var með okkur í
klefa á leiðinni. Hún sagði okkur,
að hún væri að finna sænskt fólk,
sem hefði sent sér ýmislegt á stríðs-
árunum, og nú færi hún að finna
þetta vinafólk sitt á hverju sumri.
Þannig hafa ýmis sambönd mynd-
ast á stríðsárunum, sem haldast
einnig síðan friður komst á. Gréta
á heima við Oslófjörðinn ekki mjög
íangt frá Osló.
Ferðin gekk ágætlega til Stokk-
hólms um nóttina, og sváfum við
talsvert í klefanum. En mikið var
Gréta undrandi, er við sögðum
henni að við værum íslendingar.
Bæði bún og frænka hennar héldu,
að við værum Svíar. íslending lief-
ur hún víst aldrei áður séð.
í Stokkhólmi var okkar fyrsta
verk að fylgja Grétu litlu í lestina,
sem hún átti að fara með til Ljus-
dal. Vorum við svo heppin, að í
klefanum, sem við fórum með hana
inn í, voru hjón að fara til Ljusdal
og báðurn við þau fyrir hana.
Ég hef fengið bréf frá Grétu, og
skal nú lofa ykkur að heyra nokkrar
línur úr því:
„Beztu þakkir fyrir kortið, sem
var fjórtán daga á leiðinni hingað.
Eg geng nú í skóla á hverjum degi
og hef mikið að læra. Eg sendi þér
litla mynd af mér, en sendi aðra
Gréta 8 ára.
stærri síðar. Á myndinni er ég að-
eins átta ára, en nú er ég tólf ára.
Svo sendi ég þér nokkrar myndir
frá Osló. Ferðin gekk ágætlega frá
Stokkhólmi til Ljusdal og ég fór
ekki heim fyrr en eftir þrjár vik-
ur-------“.
Þetta var kafli úr bréfinu. — Læt
ég nú þetta nægja um Kára og Grétu
að þessu sinni.
=ý —