Vorið - 01.03.1948, Síða 14
10
V O R I Ð
inu hans Kára er einnig talsvert af
sjávardýrum, ígulker, krossfiskar o.
fl. Ég bað Kára að skrifa mér svolít-
ið um safnið sitt. Hann sendi mér
meðfylgjandi mynd og eftirfarandi
bréf:
„Hér er mynd af mér og nokkrum
steinunum mínum. Steinaxirnar
eru frá steinöld. Sumar þeirra hef ég
fengið frá afa mínum, en aðrar hef
ég fundið sjálfur, því að ég leita allt-
af að fáséðum steinum, þegar ég
geng um. Ég á líka marga steingerv-
inga af ígulkerum með myndamót-
um eftir plöntur. Ég á einnig fullan
kassa af kuðungum ('bobbum),
sumir eru eins stórir og barns-
höfuð en aðrir pínulitlir.
Með kærri kveðju frá
Kára.“
Svona er nú bréfið lians Kára.
Haldið þið ekki, drengir, að gaman
væri að koma sér upp svolitlu nátt-
urugripasafni? Þurrkaðar plöntur,
uppsettir fuglar og fuglsegg ætti að
vera þar með. Byrjið strax á morg-
un, og þið rnunuð sanna, að það
borgar sig. Sendið svo „Vorinu“
línur um safnið ykkar. Til ham-
ingju með þetta nýja verkefni!
Gréta.
Þegar ég ætlaði með næturlest-
inni í sumar frá Osló til Stokk-
Jiólms og við hjónin biðum í röð
eftir því að opnað yrði niður á lest-
arpallinn, þá vék sér að okkur norsk
kona og bað okkur fyrir 12 ára
Kári.