Vorið - 01.03.1948, Síða 16
V O R I Ð
12
HUGO NORDSTEDT:
'MMM KRÓNUR
Leiksvið: Biðstofa á járnbrautarstöð
Leikendur: Herra Pétur, Sveinn
9 ára, Ulla 7 ára, blindur maður.
Sveinn og Ulla koma inn og bera
stóra ferðatösku á milli sín. Herra
Pétur kemur á eftir þeim.
HERRA PÉTUR: Jæja, þá erum
við nú loksins komin alla leið.
Var ekki taskan þung?
SVEINN: Onei, ekki svo mjög. En
hvar eigum við að láta hana?
HERRA PÉTUR: Við getum látið
hana þarna við afgreiðsluborðið.
Hún getur verið þar fyrst um
sinn. En nú þarf ég að kaupa mér
farseðil. (tekur vasabók sína upp
úr vasanum). Jæja, lrvað viljið
þið svo fá fyrir að bera töskuna?
ULLA: Ekkert, frændi, alls ekkert.
HERRA PÉTUR: Ekkert? Víst
eigið þið að fá eitthvað fyrir það.
Sjáið nú til. Skiptið þessum seðli
á milli ykkar, en þið megið ekki
rífa liann sundur.
SVEINN: Fimrn krónur! Nei, við
getum ekki tekið við þessu.
LILLA: Við þurfurn enga borgun
fyrir þetta. Við gjörðum það ekki
til þess að fá peninga fyrir það.
HERRA PÉTUR: Jæja, það er
sjálfsagt rétt hjá ykkur. En frændi
gamli er sem betur fer ekki alveg
auralaus. Takið því við þessu og
verjið því vel. ("Hann snýr sér við
og hringir bjöllunni hjá farmiða-
sölunni) Einn miða á þriðja far-
rými til Stokkhólms. . . . Llvað
var það mikið? Jæja,.... tutt-