Vorið - 01.03.1948, Qupperneq 26

Vorið - 01.03.1948, Qupperneq 26
22 VORIÐ Jens hætti að syngja og horfði felmtsfullur í kringum sig. En þeg- ar hann kom auga á Litla-Jens, nam liann staðar og sagði með mjúkum rómi: „Æ, Litli-Jens, ert það þú. Komdu, svo skaltu sjá, að ég hef dá- lítið handa þér!“ Nú varð hljótt rneðal drengj- anna. Ruglaði-Jens fór niður í vasa sinn, tók tvö stór og falleg epli upp og rétti Litla-Jens þau. „Þarna geturðu séð, Litli-Jens,“ hvíslaði Hinrik að honum, „við vissum að góðvinur þinn mundi hafa eitthvað handa þér. Nú verð- ur þú að bjóða honum heim til þín og leika þér við hann í sandkassan- um, litli vinur!“ Þá gerðist eitthvað hið innra með Litla-Jens, sem hann gat aldrei skýrt síðar. Hann stóð þarna og horfði á hina framréttu hönd Rugl- aða-Jens með hinum tveimur fallegu eplum, og fyrr en hann eig- inlega vissi af, hvað hann gerði, sló hann með knýttum hnefa af öllu afli á liinn framrétta handlegg, svo að eplin ultu eftir óhreinum vegin- um. En þessu var ekki þar með lok- ið. Þegar Ruglaði-Jens rak upp angistaróp og hrópaði: „Litli-Jens, Litli-Jens,“ réðist drengurinn á liann og sparkaði í stafinn hans, svo að Ruglaði-Jens datt á veginn, og þá fyrst varð honum ljóst, hvað hann hafði gjört. Samstundis heyrðist valdsmann- leg rödd bak við drengjahópinn: „Hvað gengur hér á?“ Og nú urðu drengirnir smeykir, því að þetta var Thomsen kennari. Hann hafði heyrt hávaðann inn á skrifstofu sína og var nú kominn út til að sjá, hvað um væri að vera. Enginn svaraði. Hann gekk beint til Ruglaða-Jens, þar sem hann lá stynjandi og grátandi og tautaði st()ðugi: „Litli-Jens! Litli-Jens!“ — Thomsen kennari hjálpaði honum á fætur og sagði síðan við börnin: „Allir drengirnir eiga nú sam- stundis að fara inn og setjast í sæti sín!“ Þegar hann hafði talað um fyrir gamla manninum og sannfært sig um, að hann hafði ekki meitt sig neitt, lofaði hann honum að fara. Svo tíndi hann eplin upp og gekk inn til drengjanna. Drengjunum var órótt í skapi yf- ir því, sem koma mundi, þegar þeir settust inn í skólastofuna. Þeir vissu, að eins og Thomsen kennari var mildur og vingjarnlegur, þegar allt gekk eins og átti að vera, þá var hann strangur og harður gagnvart öllu því lúalega, ódrengilega og illa í fari þeirra. Litli-Jens sat með höfuð í gaupn- um sér og grét. Það var eins og hann þekkti sjálfan sig ekki framar. Hon- um fannst hann hafa framið glæp. Hvað hafði hann gert við Ruglaða- Jens? Barið hann, sparkað í hann, þótt Ruglaði-Jens hefði ekkert gert. honum — heldur hið gagnstæða, —

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.