Vorið - 01.12.1950, Síða 15

Vorið - 01.12.1950, Síða 15
VORIÐ 133 svo komu gestir og ég vakti fram eftir.“ Kennarinn kinkaði kolli með áhyggju- og alvörusvip. Hann trúði drengjunum. Hér dugðu engar ávítur. Að því búnu hélt hann áfram að tala við börnin. Dagurinn var leiðinlegur, eða svo fannst þeim félögum að minnsta kosti. Þeir höfðu ekkert læi t af því, sem þeir áttu að læra, og kunnu því ekkert. Það var dálítið niðurlægj- andi, þegar hin börnin stóðu sig vel. En það varð að taka því. Bara að vera harður og kaldur. Þeir voru þó eitthvað svo þreyttir og syfjaðir. Já, dagurinn var leiðinlegur. Skólinn var leiðinlegur. Allt var leiðinlegt. Þeir félagar urðu því fegnir, þeg- ar kennslu var lokið, og þó hlökk- uðu þeir eiginlega ekkert til að koma heim. Það var líka leiðinlegt heima. Pabbi var aldrei heima. Mamma var líka oft úti. Þeir Jói og Stjáni urðu samferða, og Pétur í Skúrnum slóst einnig í förina. Hann hafði komið stund- víslega í nrorgun, en annars var svipað ástatt með liann og þá Jóa og Stjána. Þetta voru hálfgerðir útigangshestar. Og enn eitt var sameiginlegt með þeim öllum. Þeir voru allir farnir að reykja í laumi. Þeim fannst þeir vaxa dálítið við það. Þegar þeir komu að litla húsinu hennar Boggu á Bakka, tóku þeir að vanda að hnoða snjókúlur og létu dynja á giuggununr. Það væri þó svolítil tilbreyting, ef þeir gætu gert Boggu reiða. En hvað var nú þetta. Þeir heyrðu greinilega brothljóð. Það hafði verið smásteinn í einni kúl- unni og ein rúðan lrafði nrölbrotn- að. Glerbrotin féllu ýmist inn í litlu stofuna hennar Boggu, eða í snjó- inn fyrir utan. Þeir félagar urðu dálítið skömmustulegir og hröðuðu sér burt. Þeir höfðu ekki ætlað að brjóta rúðuna. Daginn eltir var drepið hægt á skrifstofuhurð skólastjórans. „Kom inn!“ Það konr enginn, og aftur var drepið á dyrnar. „Kom inn!“ En það kom enginn inn. Þá gekk skólastjórinn fram að hurðinni og opnaði hana. Fyrir franran stendur öldruð kona í slit- inni kápu og nreð skýlu á höfði. Það var Bogga á Bakka. „Komið þér sælir. Mætti ég fá að segja við yður örfá orð?“ spurði Bogga feimnislega. „Já, gjörið þér svo vel að koma inn,“ nrælti skólastjórinn. Konan snreygði sér úr gúmmístíg- vélunum fyrir franran hurðina og þokaðist hægt inn. „Ég verð að biðja yður að fyrir- gefa, að ég er að gera yður ónæði,

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.