Vorið - 01.12.1950, Síða 24

Vorið - 01.12.1950, Síða 24
142 VORIÐ Hann var kominn til Brúnós, lagði trýnið á kné hans og horfði í hann með brúnu augunum sín- um, eins og hann væri að biðja liann fyrirgefningar á því, hvernig hann tók á móti honum. „Hann er aðeins tveggja ára, en er þó eins vitur og tíu ára gamall hundur. Honum geðjast vel að þér. „Heyrðu,“ bætti Itann við, „þú liefðir kannske gaman af að koma út með mér seinna í dag? Þú gætir hlaupið í húsin fyrir mig, og spurt, hvort ekki þurfi að brýna eitthvað. Eða, hefur þú nokkuð sérstakt að starfa?" „Nei — ég get komið með þér,“ sagði Brúnó, og það gladdi hann að fá eitthvað gagnlegt að starfa, og þá einkum að geta ofurlítið launað matinn og næturgreiðann. Síðari liluti dagsins leið fljótt. Þegar þeir urðu samferða heim um kvöldið, sagði Falk: „Ég þyrfti nú helzt að hafa svona hjálp á hverjum degi.“ Þegar Brúnó var háttaður urn kvöldið og hafði þrýst sér alveg upp að vegg, til þess að þrengja sem minnst að rekkjunaut sínum, sagði Falk: „E£ þú kærir þig um, mátt þú vera lijá mér þessa daga, sem ég á eftir að vera hér í Ala- borg. Þú hefur þá tíma til að sjá þig um í borginni." „Þakka þér fyrir,“ sagði Brúnó. Þannig hjálpuðu þeir, hvor öðr- um, og þegar þeir komu heim á kvöldin, tók Brúnó kassann sinn og skemmti bæði sjálfum sér og Falk við það að temja mýsnar. Dag nokkurn sagði Falk: „Þú ættir að reyna að kenna Svarta- pétri einhverjar listir. Þegar ég legg af stað aftur út um sveitirnar til að brýna, væri garnan ef hann gæti sýnt bændabörnunum listir sínar. Ég er viss um, að hann get- ur lært að ganga á afturfótunum, og ef til vill að halda á byssu með framfótunum og vinna sér á þann liátt inn fáeina aura.“ „Já,“ sagði Brúnó, og var nú allt í einu farintr að byggja stórkostleg- ar skýjaborgir, en litlu síðar sagði liann hikandi: „Ég mætti líklega ekki verða þér samferða og reyna að vinna mér inn fáeina aura með því að sýna mýsnar mínar og gjöra svo ýmislegt, sem ég kann sjálfur. Ungfrú Nelly og lir. Donald eru farin að dansa saman nú þegar, og svo gæti ég klætt þau í einhver lag- leg föt.“ Falk sat hu'gsi litla stund, en mælti því næst: „Þetta er líklega ekki svo vitlaus hugmynd, drengur minn. En ég held nú sarnt, að þú ættir að reyna að taka þér eitthvað skárra fyrir hendur. Slíkt flökkulíf getur verið fullgott fyrir þá, sem orðnir eru olnbogabörn þjóðfélagsins, en mað- ur á þínum aldri verður að setja sér hærra takmark. Og þó----------“ bætti hann við alvarlega, mynd-

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.