Vorið - 01.12.1950, Blaðsíða 35

Vorið - 01.12.1950, Blaðsíða 35
VORIÐ 153 hver ræðan eftir aðra, og þá fékk prinsinn tækifæri til að virða þau öll fyrir sér. Hann langaði til að segja, hver hann væri og fann, að hann yrði að gera það áður en hann færi frá höllinni. Hann langaði til að faðma að sér móður sína og syst- ur. En föður hans mundi sennilega verða mikið um, er hann fengi að heyra sannleikann. Allt í einu stóð kóngurinn upp til að halda ræðu. Hann óskaði brúðhjónunum til hamingju og að lokum sagði hann: ,,En í dag, við þetta brúðkaup, viljum við einnig minnast prinsins, sem strauk frá okkur, af Jdví að liann fékk ekki að leika á fiðlu.“ Prinsinn, eða Rikk Rand, sem hann hét núna, komst svo við, þar sem hann stóð við fiðluna sína, að hann langaði til að kalla upp: — Eg er prinsinn! „Ég vildi leggja líf mitt í sölurn- ar, til þess að fá að sjá prinsinn okk- ar aftur,“ bætti kóngurinn við, ef ég hefði ekki tekið af honum fiðl- una, hefði hann ef til vill leikið hér fyrir okkur í dag í staðinn fyrir snillinginn Rikk Rand.“ Nú gat Teddy'prins ekki setið á sér lengur. Hann stóð upp og sagði: „Ég er Teddy prins!“ Kóngurinn, drottningin, brúð- hjónin og allir gestirnir sneru sér að hljómsveitarstjóranum. Allir urðu dauðskelkaðir, }jví að þeir héldu, að hinn frægi hljómsveitar- stjóri væri að gera gabb með kóng- inn, og það mæltist ekki vel fyrir að trufla ræðu kóngsins með svona at- hugasemd. „Svona gamansemi er ég óvanur!“ sagði kóngurinn og leit stranglega til Rikk Rand. Prinsinn sá, að enginn trúði hon- um, og félögum hans í hljómsveit- inni þótti þetta vera leiðinleg veizluspjöll. En Rikk Rand var ró- legur. Hann tók fiðluna, setti liana undir hökuna og gekk til Lísu prins- essu, og svo byrjaði hann að leika „prinsessusönginn“ fyrir hana. Það varð alveg hljótt, og enginn truflaði hann. Augu prinsessunnar fylltust tárum, og svo runnu þau niður kinnar hennar. Kóngurinn varð að setjast vegna geðshræringar og drottningin starði votum augum á Teddy prins. Þau voru ekkilengurí neinum vafa um, að þetta var prins- inn, því að enginn annar kunni „prinsessusönginn". Þegar prinsinn hafði lokið laginu, kysstu hann syst- ur sína innilega. Svo tók kóngurinn til máls: „Velkominn heim, kæri prinsinn okkar! Þegar þú varst lítill, skildi ég ekki, að þú gætir orðið svona mikill listamaður. Hefði ég vitað það, skyldir þú liafa fengið að liafa fiðluna þína,“ — rödd hans titraði, og hann þurrkaði sér um augun með vasaklútnum. Prinsinn leit af einum á annan, og hann sá, að söngkennarinn var mjög undrandi. Það var greinilegt,

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.