Vorið - 01.09.1956, Blaðsíða 6

Vorið - 01.09.1956, Blaðsíða 6
84 V O R I Ð litið upp úr vélarrúminu og athug- aði þá hvar þeir voru staddir. Eftir alllanga siglingu, gaf Leif- ur þá skipun niður í vélarrúmið að setja á hálfa ferð. Þeir voru komnir inn í liin þröngu sund rétt utan við þorpið. Það sást ekki nokkur lifandi vera við höfnina. Þetta var eins og dauð- ur bær. En klukkan var líka ekki nema liálf þrjú að nóttu. Eftir litla stund lá ,,Aldan“ bund- in við bryggjuna, eins og hún var vön. En þeir Óttar og Leifur héldu herráðsfund til að ákveða frekari framkvæmdir. „Matthías Abelsson er víst um- boðsmaður fyrir vátryggingafélag- ið,“ sagði Óttar. „Við verðum að tala við hann fyrst.“ En Matthías var ekki sérlega blíður á manninn, þegar jreir félag- ar komu og börðu utan húsið þar til þeir ltöfðu vakið hann. En þegar honum varð loks Ijóst, hvað hér var um að ræða, kom líf í tuskurnar. Hann fór með drengjunum niður á bryggjuna og kom þangað mátulega til að sjá þá Sebastian og Kristófer róa að landi. Þeir lilupu á bak við sjóhúsið til þess að veita því athygli livernig þeinr félögum yrði við, þegar þeir sæju ,,Ölduna“ heila á húfi, án þess þó að vera séðir. „Hva-hvað sé ég. Er ég farinn að sjá sýnir Kristófer?" heyrðu þeir Sebastian hrópa upp. „Er það ekkt „Aldan“, sem liggur þama?“ Kristófer kom ekki upp nokkru orði, svo undrandi varð hann. En i stað þess tautaði hann eitthvað óskiljanlegt. „Þú liefur ekki dregið botnlok- urnar nógu vel frá,“ sagði Sebastian. Það hnussaði í Kristófer. „Og þótt ég hefði nú ekki gert það," sagði hann, „og báturinn hefði get- að haldizt á floti. Þá hefur liann varla komizt sjálfur hingað að bryggjunni. Ilér eru draugar að verki.“ En nú þótti Matthíasi kominn tími til að gefa sig frarn. Hann konr nú fram úr fylgsni sínu ásamt drengjunum og kallaði: „Nei, góðir hálsar. Hér eru eng- ir draugar að verki. Bátnum er bjargað á löglegan hátt, eftir að áhöfnin hafði yfirgefið hann.“ Þeir Sebastian og Kristófer koniu ekki upp nokkru orði, en gláptu aðeins af undrun. „Þetta getur orðið nokkuð dýrt gaman fyrir ykkur," hélt Matthías áfram, „þegar það hefur verið sann- að, að þið ætluðuð að sökkva bátn- um til að fá greitt vátryggingarféð." Óttar og Leifur fylgdust af at- hygli með öllu, sem franr fór. Og þeir urðu nálega eins undrandi og Sebastian og Kristófer, er Matthías sagði: „Þið megið örugglega treysta því, að vátryggingarfélagið greiðit'

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.